Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Flugvél lent á Reykjavíkurflugvelli vegna reyks um borð sem rakinn er til vélarbilunnar

$
0
0

Flugvél Air Iceland Connect var snúið aftur til Reykjavíkurflugvallar eftir flugtak á fjórða tímanum í dag eftir að reyks varð vart í vélinni og heppnaðist lendingin vel.

Líklegt þykir að um vélarbilun hafi verið að ræða, en annar hreyfla vélarinnar mun hafa bilað. Fjörutíu og fjórir farþegar, auk áhafnar, voru um borð og sakaði þá ekki. Viðbragðsaðilar voru kallaðir til og gekk vinna þeirra vel fyrir sig,  samkvæmt viðbragðsáætlun fyrir Reykjavíkurflugvöll.

Eftir að vélin var lent var aðgerðin afboðuð kl. 15.36

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652