Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tengsl milli mígrenis og aukinnar dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma

$
0
0

Mígreni er sérstök tegund höfuðverkja og talið er að um 6% karla og 18% kvenna þjást af mígreni hér á landi. Ekki er um hefðbundinn höfuðverk að ræða heldur ákafan verk sem getur haft áhrif á lífsgæði og vinnufærni. Mörgum spurningum er ósvarað um orsakir mígrenis og hafa margar rannsóknir sýnt fram á tengsl mígrenis við aðra sjúkdóma. Lárus Steinþór Guðmundsson, doktor í líf- og læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands, hefur rannsakað og sýnt fram á tengsl mígrenis við dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Í doktorsritgerð hans frá árinu 2010 kemur fram að mígreni sé þó vægari áhættuþáttur en til dæmis reykingar, sykursýki og háþrýstingur. 

Sérsvið Lárusar er lyfjafaraldsfræði og faraldsfræði höfuðverkja. „Ég var að rannsaka háþrýsting, það er háan blóðþrýsting og lyfjameðferð við honum, í gögnum Hjartaverndar, þegar áhugi minn á tengslum mígrenis við háþrýsting vaknaði. Í doktorsverkefni mínu, sem ég varði árið 2010, fór ég út í það að búa til nálgun við mígrenigreiningu út frá spurningum um háþrýsting sem voru gerðar árið 1966, það er rúmlega 20 árum áður en fyrsta alþjóðlega skilgreiningin á mígreni var birt. Þar var hins vegar ekki hægt að sjá tengsl á milli mígrenis og háþrýstings og í kjölfarið fór ég að skoða tengsl á milli mígrenis og blóðþrýstings.“

Í því samhengi fann Lárus út að um mismunandi samband er að ræða milli mígrenis og blóðþrýstings út frá efri og neðri mörkum. „Eftir því sem efri mörkin, það er slagbilsþrýstingur, hækka þá minnka líkur á því að þú sért með mígreni, en eftir því sem neðri mörkin, það er hlébilsþrýsingur, hækka aukast líkur á því að þú sért með mígreni.“ Það er því bilið á milli efri og neðri marka, svokallaður púlsþrýstingur, sem best segir til um líkur á að einstaklingur hafi eða fái mígreni. „Í kjölfarið fór ég og samstarfsmenn mínir að skoða samband þess að hafa mígreni á miðjum aldri og að fá litlar heilablæðingar síðar á ævinni. Blæðingarnar eru einkennalausar og því er vel hægt að lifa með þeim og þær hafa ekki verið tengdar við breytingar í starfrænni getu heilans,“ segir Lárus.

Mígreni með áru getur leitt til dauðsfalls fyrir aldur fram
Niðurstöður Lárusar byggja á gögnum úr hóprannsókn Hjartaverndar þar sem þátttakendum, 18.725 körlum og konum, var fylgt eftir að meðaltali í 26 ár eftir að þeir höfðu svarað spurningum um ýmsa þætti tengda hjarta- og æðasjúkdómum. Helstu niðurstöður doktorsverkefnisins voru þær að fólk á miðjum aldri (40-60 ára) sem þjáist af mígreni höfuðverkjum ásamt áru, það er sjóntruflunum eða dofa sem eru undanfari mígrenikasts, deyr frekar vegna hjarta- og æðasjúkdóma, fyrir aldur fram, en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk. Einstaklingar með mígreni án áru reyndust hins vegar ekki vera í aukinni áhættu.

Lárus segir þó að mikilvægt sé að benda á að þessi áhættuaukning sem fannst var minni en áhætta sem tengist þekktum áhættuþáttum eins og reykingum, háum blóðþrýstingi og of háu kólesteróli. „Það fer hins vegar ekki milli mála að mígreni með áru er sjálfstæður áhættuþáttur, sem þýðir að áhættuaukningin sem tengdist mígreninu var ekki gegnum þessa þekktu áhættuþætti eins og háan blóðþrýsting eða hátt kólesteról. Af hverju einstaklingar með mígreni með áru eru í aukinni áhættu miðað við þá sem hafa mígreni án áru er ekki vitað, það er hugsanlega vegna breytinga í æðavegg einstaklinga með mígreni með áru.“

22092 mígreni 1

Mígreni mun algengara hjá konum en körlum
Aðspurður um ástæður þess af hverju mun fleiri konur en karlar greinist með mígreni segir Lárus að erfitt sé að nefna eina skýringu, ýmislegt kemur til greina. „Ein möguleg skýring liggur í mismunandi hormónabúskap karla og kvenna. Fyrir kynþroskaaldur er algengi mígrenis svo til jafnt milli kynja, um það bil 3-6%. Við kynþroska eykst algengi hratt hjá konum en hægt hjá körlum, algengi mígrenis er hæst í kringum 40-45 ára aldur, um 25% hjá konum og um 8% hjá körlum. Upp úr 50 ára aldri fer algengið að falla og er orðið tiltölulega jafnt milli kynja eftir 80 ára aldur. Önnur skýring liggur líklega í því hvað þarf til þess að mígrenikast hefjist en dýratilraunir benda til þess að minna þurfi til þess að mígrenikast hefjist hjá kvendýrum en karldýrum.“

Áhugi erlendis frá skilar sér í auknum rannsóknum
Rannsókn Lárusar fékk mikla athygli í erlendum fjölmiðlum á sínum tíma og segir hann að ein af skýringum þess vera að algengi mígrenis er hátt, auk þess sem niðurstöðurnar sýna fram á að ákveðin tegund mígrenis geti aukið dánartíðni. „Þess ber þó að geta að til þess að hafa möguleika á að finna þennan mun á dánartíðni þarf mjög stóra rannsókn, um 15-20 þúsund manns eða meira og það þarf mjög langa eftirfylgni, 15 ár eða meira.“ Lárus segir að áhugi á þessari rannsókn og öðrum sem hann og samstarfsmenn sínir hafi gert hafi skilað sér í auknu rannsóknarsamstarfi bæði hérlendis og erlendis á áhrifum mígrenis. „Ég er til dæmis í samstarfi við vísindamenn í Miðstöð í Lýðheilsuvísindum HÍ í rannsókninni Heilsusaga Íslendinga og mun nýta gögn frá þeim til þess að meta mögulega þætti sem stuðla að því að einstaklingur fær sitt fyrsta höfðuverkjakast. Einnig mun ég athuga forspárþætti þess að einstaklingar á miðjum aldri hætta að fá mígreni. Þá tek ég einnig þátt í rannsókninni Svefnklukka Íslendinga þar sem ég mun kortleggja svefntruflanir einstaklinga með mígreni og mögulegar breytingar á þeim eftir árstíðum.“

Heilbrigt líferni getur dregið úr fjölda mígrenikasta
Að sögn Lárusar eru ekki til nein úrræði sem eru sértæk fyrir þá sem hafa mígreni með áru. „Það sem er heppilegast fyrir þá sem hafa mígreni með áru, sem og alla aðra, er að reykja ekki og lifa heilbrigðu lífi hvað varðar hreyfingu og mataræði og halda streitu innan hæfilegra marka. Það sem einstaklingur með mígreni getur gert er að hafa stjórn á öðrum áhættuþáttum, eins og til dæmis háþrýstingi, blóðfitu og reykingum. Fyrir suma virkar hreyfing til dæmis til að draga úr köstum og lyf virka á aðra.“

Lárus segir jafnframt að þó svo að það eigi eftir að sýna fram á að ef einstaklingur nær að draga úr fjölda kasta þá aukist lífslíkur, þá sé það mjög líklega þannig. „Reglulegur svefn, hreyfing og heilbrigt mataræði hafa áhrif á fjölda mígrenikasta. Það eru yfir 200 þættir sem geta „triggerað“ mígreniköst. Það er misjafnt hvaða þættir hafa áhrif hjá hverjum og einum, því getur verið gagnlegt að halda einfalda dagbók til þess að finna hvaða þættir það eru og reyna að halda þeim í skefjum. Einnig getur verið gott að tala við lækni um mismunandi meðferðir sem til eru við mígreni, til þess að fækka köstum og draga úr einkennum mígrenikasta.“

Hvað er mígreni?

  • Mígreni er tauga- og æðasjúkdómur sem hefur áhrif á um 6% karla og 16-18% kvenna.
  • Mígreni hefur verið lýst á marga vegu síðustu 5000 árin en fyrsta alþjóðlega skilgreiningin var birt árið 1988.
  • Ekki er til neitt blóðpróf eða myndgreining sem gefur til kynna hvort einstaklingur er með mígreni, greiningin byggist á klínísku viðtali við lækni sem tekur nákvæma sögu og beitir greiningarviðmiðum til þess að flokka mígrenið og aðra höfuðverki niður í undirflokka. Hafir þú grun um að þú þjáist af mígreni er best að leita til heimilis- eða taugalæknis.22092 mígreni 2
  • Greina má milli tvenns konar mígrenis: Mígreni með áru og mígreni án áru. Ára er í þessu samhengi sjón- og skyntruflanir sem geta fylgt mígrenikastinu.
  • Um 60% þeirra sem fá mígreni fá foreinkenni, 12-24 tíma fyrir kast, sem geta t.d. verið þreytutilfinning, þörf fyrir að geispa endurtekið eða stífleiki í vöðvum.
  • Í mígrenikastinu sem kemur í kjölfar foreinkenna fara skynfærin á yfirsnúning, venjuleg birta verður sársaukafull fyrir augun, venjulegur hljóðstyrkur verður sársaukafullur fyrir eyrun og jafnvægisskyn getur raskast þannig að einstaklingur getur fundið fyrir svima og ógleði.
  • Ýmislegt getur stuðlað að mígrenikasti og má þar nefna þreytu, áfengi, tíðablæðingar, hungur og jafnvel óþol fyrir vissum fæðutegundum.
  • Hægt er að fækka köstum og gera þau vægari með því að stunda heilbrigt líferni, læra af reynslunni með því að halda einfalda dagbók og forðast það sem framkallar köst eða gerir þau verri.
  • Sérstök mígrenilyf geta einnig komið í veg fyrir mígreniköst eða minnkað einkenni þeirra.

The post Tengsl milli mígrenis og aukinnar dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652