Brúðkaupsferðin á að snúast um samveru brúðhjónanna og skiptir kannski ekki höfuðmáli hvert er farið. Þið gætuð farið í tjaldútilegu og haft það alveg eins gott og í lúxussvítu í erlendri stórborg.
En það er þó ekki úr vegi að nýta brúðkaupsferðina og fara á framandi slóðir, ef þið ætlið á annað borð að fara út fyrir landsteinana. Internetið geymir ógrynni upplýsinga um alla heimsins staði og það eru engin takmörk fyrir því sem hægt er að gera sem fyrir fáum árum var óaðgengilegt.

Með tilkomu vefsíðna eins og dohop.is og lastminute.com er hægt að bóka ferðir með stuttum fyrirvara hvert sem er. Því ekki að fara til Bali, Hawaii eða Jamaíka? Eða til Perú og kanna Machu Picchu? Kannski „road trip“ þvert yfir Bandaríkin? Möguleikarnir eru óþrjótandi og ef ævintýraþráin er sterk hafið þið heiminn í hendi ykkar.
The post Brúðkaupsferðir: Þið hafið heiminn í hendi ykkar appeared first on Fréttatíminn.