Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Morgunstundin: Vegan-boltinn er farinn að rúlla

$
0
0

„Ég elda alla daga á Vínyl svo ég fæ mér venjulega morgunmat þar. Í dag fæ ég mér bara kaffi. Núni er ekki vegan svo hún borðar mig í morgunmat,“ segir Linnea Hellström, ein af fáum ef ekki eini vegan-kokkur á Íslandi.

Linnea kokkar á Kaffi Vínyl á Hverfisgötu og fyrir hennar tilstilli varð staðurinn á dögunum fyrsti veitingastaðurinn með alveg vegan matseðil.

Linnea hefur verið grænmetisæta frá barnæsku, en hún ólst upp á sveitabýli í Svíþjóð og ákvað snemma að hætta að borða dýrin sem hún lék sér við á býlinu.
Um tvítugt tók hún svo út allar dýraafurðir og hefur verið frumkvöðull í að kynna veganisma fyrir Íslendingum frá því hún fluttist hingað frá Svíþjóð.
Matseðillinn á Vínyl er hluti af því verkefni. „Vegan-boltinn er farinn að rúlla hérna,“ segir Linnea.

„Í stað þess að einblína á takmarkanir við að hætta að borða dýraafurðir vil ég sýna fólki þennan fjölbreytta matarheim sem opnast við að prófa að vera vegan.“
Í því skyni eldar Linnea mikið Oumph á Vínyl, einskonar vegan-kjöt sem hún segir frábæra brú fyrir kjötætur sem vilja prófa vegan-mat.
„Mín reynsla er sú að með því að vera vegan taparðu engu, þú græðir bara!

The post Morgunstundin: Vegan-boltinn er farinn að rúlla appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652