Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tvö fylgdarlaus börn hafa fengið vernd á Íslandi

$
0
0

Útlendingamál Aukning hefur orðið á umsóknum barna sem hingað koma til lands án forráðamanna. Tvö börn hafa fengið vernd á Íslandi á meðan þrjú bíða eftir svari.

Fimm ungmenni leituðu verndar hér á landi á fyrstu sex mánuðum ársins, samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, en sjö ungmenni leituðu hingað á síðasta ári

Öll ungmennin voru án fylgdarmanna en þessi aukning er í samræmi við almenna fjölgun hælisumsókna. 74 einstaklingar frá 42 löndum sóttu um vernd á Íslandi á fyrstu sex mánuðum ársins 2016. Á sama tíma á síðasta ári höfðu 86 einstaklingar sótt um vernd.

Af tölfræðilegum gögnum Útlendingastofnunar má sjá að tvö þessara barna, sem hingað komu á fyrstu sex mánuðum ársins, voru frá Spáni.

Í skriflegu svari Útlendingastofnunar segir að tvö börn hafi fengið hæli hér á landi en þrjár umsóknir séu enn til meðferðar.

Þegar spurt var hvort grunur léki á að börnin gætu verið fórnarlömb mansals, fengust þau svör að málin hefðu verið skoðuð með það að leiðarljósi að úrskurða hvort að möguleiki væri á að þarna væri mansal að eiga sér stað. Ekki hefur verið grunur um mansal í tengslum við umsóknirnar fimm á þessu ári. Í einu tilviki á síðasta ári var grunur um mansal í tengslum við umsókn fylgdarlauss ungmennis en viðtöl hjá Útlendingastofnun og rannsókn lögreglu staðfestu það ekki.

Séu niðurstöður afgreiddra mála á þessum fyrstu sex mánuðum skoðaðar, þá óskuðu 310 einstaklingar eftir hæli eða vernd hér landi á fyrstu sex mánuðum ársins. 53 fengu vernd eða mannúðarleyfi hér á landi. 106 var synjað. 103 voru sendir úr landi á grundvelli Dyflinarreglugerðarinnar. 14 fengu vernd í öðru ríki og 34 umsóknir voru dregnar til baka, eða einstaklingar fundust ekki aftur. Í fáum orðum; 53 fengu að vera áfram hér á landi af 310 einstaklingum. -vg

The post Tvö fylgdarlaus börn hafa fengið vernd á Íslandi appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652