Ragnheiður og Hrafnhildur eru meðlimir Yung Sluts, samstarfshóps Druslugöngunnar. Þær vilja virkja sína kynslóð í að taka afstöðu gegn kynferðisofbeldi og uppræta menningu hrellikláms og nauðgunarbrandara.
„Hrelliklám, drusluskömm (e. slutshaming) og nauðgunarbrandarar er hluti af hversdagsleika okkar kynslóðar sem þarf að uppræta. Það þykir eðlilegur hlutir að eiga nektarmyndir í símanum, af stelpum og strákum, sem eru síðan notaðar gegn þeim. Sum eiga jafnvel heilt albúm af myndum sem þau eru tilbúin til að dreifa,“ segja þær Ragnheiður Íris Ólafsdóttir og Hrafnhildur Jóna Steingrímsdóttir sem eru 15 ára.

Þær tilheyra hópnum Yung Sluts sem samanstendur af nemendum úr Háteigsskóla, Hlíðaskóla og Austurbæjarskóla og starfar i samvinnu við Druslugönguna. Fyrsta verk félagsins var að standa fyrir svokölluðu „peppkvöldi“ fyrir Druslugönguna, stílað inn á þeirra aldurshóp og fjölskyldufólk. „Á peppkvöldum er Drusluvarningur seldur, bolir, derhúfur, nærbuxur og tattoo. Hingað til hafa kvöldin aðeins verið haldin á skemmtistöðum sem okkar aldurhópur kemst ekki inn á.“ Ungu druslurnar tóku því höndum saman og stóðu fyrir viðburð á Bernhöftstorfu á miðvikudaginn síðastliðinn sem sló í gegn.
Vinkonurnar segja sína kynslóð móttækilega fyrir breytingum en umræðan í kringum þær stöllur blæs þeim von í brjósti. „Ég held að internetið hafi breytt miklu. Það var margt í okkar samfélagi sem ég setti spurningarmerki við aftast í kollinum, síðan fóru samfélagsmiðlar að opna augu manns enn frekar og maður sá að fleiri voru sömu skoðunnar,“ segir Ragnheiður og Hrafnhildur tekur undir. „Það sem við sjáum kannski helst í okkar daglega lífi eru nauðgunarbrandarar lifa enn og hrelliklámið. Viðhorfið „hvað er ein „dickpic“ á milli vina“ er enn við lýði. Fólk talar sín á milli og gagnrýnir stelpur fyrir klæðaburð sem þykir of druslulegur. Við finnum samt að þetta viðhorf er að breytast með aukinni umræðu.“
Ragnheiður og Hrafnhildur líta björtum augum til framtíðar og segjast aldrei ætla að hætta að berjast fyrir betra samfélagi. „Við litum mikið upp til þeirra sem skipulögðu gönguna í fyrra og öllu þessu flotta fólki sem stígur fram. Þessi viðburður er nauðsynlegur til að sýna stuðning,“ segir Hrafnhildur og Ragnheiður bætir við að lokum: „Það er af nægu að taka og við viljum leggja okkar af mörkum.“
The post Hvað er „dickpic“ milli vina? appeared first on Fréttatíminn.