
Langvinsælasti molinn, sá sem hverfur alltaf um leið úr nammibarnum í Hagkaup, er hinn sívinsæli klatti. Þessi lungamjúki saltlakkrísmoli er fyrir löngu orðin klassískur í hugum margra enda verið fluttur inn við stöðugar vinsældir frá því snemma á níunda áratugnum.

Það er ammóníum sem gefur þessum mola sitt sérstaka bragð, bragð sem margir tengja við hóstasaft. Ekki hefur verið staðfest hvaða snillingi datt upphaflega í hug að blanda ammóníum við lakkrís en farið var að fjöldaframleiða mjúkan saltlakkrís og saltlakkrís brjóstsykur á Norðurlöndunum og í Hollandi á þriðja áratug síðustu aldar. Saltlakkrísbragð er alls ekki allra þó klattinn tróni efst á vinsældalista Íslendinga. Reyndin er sú að langflestum, sem hafa ekki alið bragðlaukana í Norður-Evrópu, finnst saltlakkrís hálfgerður viðbjóður og það getur verið flókið mál að finna saltlakkrísbragð á fjarlægari menningarsvæðum.
Fast á hæla klattans kemur súri bróðir hans, bleiki klattinn. Þessi moli er mjúkur eins og bróðirinn en er súrari en sítróna á bragðið, enda búinn til líkt og annað súrt nammi úr blöndu af sykri og sítrónusýru. Íslendingar eru greinilega fyrir afgerandi bragð því gallsúrt nammi á borð við bleika klattann er heldur ekki allra þó súra bragðið sé samt mun útbreiddara en saltlakkrísbragðið.

Þriðja sætið vermir annar súr moli með keim af Hubba Bubba tyggjóbragði. Það er bleikbláa hlaupflaskan, vanalega kölluð súra flaskan. Súra tyggjóbragðsflaskan er með annað einkenni sem Íslendingar virðast vera mjög hrifnir af og það er að hún freyðir örlítið á tungunni, líkt og gömlu góðu gospillurnar.

Restina af sætindunum skipa molar sem óhætt er að kalla klassíska. Hið alþjóðlega gúmmí spælegg sem hægt er að nálgast næstum hvar sem er í heiminum, gúmmíkarlarnir sem næstum öllum líkar við og svo séríslenskir molar sem virðast aldrei fara úr tísku; tígullinn, krítin, súkkulaðidýrin, súkkulaðihnapparnir og þristurinn.




Topp tíu listinn
1. Svartur klatti
2. Bleikur klatti
3. Súr flaska
4.-10.
Spælt egg
Súkkulaðidýr
Þristur
Krítar
Tíglar
Gúmmíkarlar
Súkkulaðihnappar