Rannsókn beggja málanna er lokið hjá lögreglu og þess má vænta að hann verði ákærður á næstu vikum. Beðið er niðurstaðna úr tæknirannsóknum. Málin komu upp í júlí, hið fyrra í Keflavík en hið seinna í Reykjavík. Pilturinn er í gæsluvarðhaldi vegna hættu á að hann gæti brotið af sér aftur.
Lögreglan í Keflavík sá ummerki um að pilturinn hefði reynt að losa sig við sönnunargögn, svo sem rúmföt og fleira sem fannst í rusli við heimili hans. „Hann neitar allri sök í málinu og gefur sínar skýringar á þessu atriði,“ segir Unnar Steinn Bjarndal, skipaður verjandi piltsins.
Báðar stúlkurnar eru fimmtán ára og leituðu til Neyðarmóttöku eftir atburðina. Þær lýstu því hvernig pilturinn hefði nauðgað þeim og beitt hrottalegu ofbeldi.
↧
Neitar að hafa nauðgað 15 ára stelpum
↧