„Ég er búin að hlusta stanslaust á þessa plötu síðustu daga, frá því að hún kom út,“ segir Sunna Sasha Larosiliere. „Ég er búin að fylgjast með Solange í nokkur ár og finnst hún algjörlega frábær. Það er alltaf verið að bera þær systur saman en fólk gleymir því þá að þær eru gjörólíkar í því hvernig þær nálgast tónlistina. Samanburðurinn gengur ekki upp, enda er þetta allt önnur manneskja.“
Solange er undir miklum áhrifum frá soultónlist og arfi Motown-útgáfunnar. „Þarna er hún líka að vinna með ótrúlega spennandi, sjálfstæðum og frumlegum listamönnum eins og Raphael Saadiq og André 3000 úr Outkast.“ Eiginmaður Solange er leikstjórinn Alan Ferguson og myndböndin sem þau hafa gert í sameiningu við lögin af nýju plötunni og hann leikstýrir eru glæsileg, frumleg og falleg.

Sunna Sasha segir að það sé mikið stolt í þessari tónlist. „Solange talar inn í Black lives matter hreyfinguna sem hefur verið svo áberandi í Bandaríkjunum síðustu mánuði. Hún vitnar til dæmis með hljóðupptökum í mömmu sína í lögunum um að það sé sjálfsagt að fagna menningu svartra í samfélaginu og með því sé maður ekki endilega að líta niður á menningu annarra þjóðfélagshópa. Þessum skilaboðum kemur hún vel frá sér á tímum þegar kynþáttaólgan er mikil í landinu.“
Sunna Sasha, með sitt hrokkna hár líkt og Solange, segist hafa tengt sérstaklega við eitt laganna á nýju plötunni. „Það heitir Don’t touch my hair og ég skil það vel. Ég lendi oft í því að fólk vilji snerta hárið mitt, án þess að fyrir því sé nokkur ástæða. Það er ekkert endilega alltaf eðlilegt ef fólk þekkir mann ekki, en Solange talar um að fólk eigi líka að láta sig í friði með sitt stolt og sína sál. Hún er sín eigin manneskja. Ég bara þarf þessa fallegu, svörtu tónlist þessa dagana og hlusta alla daga. Þetta er mikilvæg plata, ég held að hún verði það áfram og vona að hún nái til sem flestra.“
