Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Finnar deila við dómarann

$
0
0

Fullyrt er í finnskum fjölmiðlum að Ísland hafi unnið leikinn vegna dómaraskandals og landsliðsþjálfarinn Hans Backe sagði í samtali við finnska sjónvarpið að tapið væri það sárasta á sínum ferli. Í finnska sjónvarpinu var einnig sagt frá reiði finnsku þjóðarinnar út í dómarann sem birtist í kjölfarið á samfélagsmiðlum.

Hart er deilt um hvort Ísland hafi komið boltanum inn fyrir marklínu á fimmtu mínútu í uppbótartíma leiksins. Svein Oddvar Moen dæmdi markið gilt og samkvæmt reglum Knattspyrnusambands Evrópu má hann ekki tjá sig um ákvörðunina.
Landsliðsþjálfari Finna var brjálaður eftir leikinn og vildi meina að markið væri kolólöglegt. „Ég hef aldrei skilið þessa rökfræði: hvernig er hægt að dæma mark þegar boltinn fer ekki yfir línuna? Þess vegna gargar maður eftir betri tækni. En það kostar of mikið. Þetta er umspil um þátttöku á heimsmeistaramóti, ekki einhverjir andskotans Abu Dhabi-leikar,“ sagði Backe í viðtali við sænska Aftonbladet.
„Í fyrsta lagi var þetta rangstaða, svo hendi, í þriðja skipti er hann með boltann í lúkunum,“ sagði Backe á blaðamannafundinum eftir leikinn.
Norðmenn koma sínum manni til bjagar og dagblaðið Verdens Gang birtir ljósmynd sem blaðið hermir að geti bjargað Moen frá frekari gagnrýni. Á myndinni virðist boltinn hafa farið inn fyrir marklínuna. Moen er þekktur knattspyrnudómari með  þónokkra dómarareynslu af stórmótum.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652