Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Brunarústir til sölu á 53 milljónir – gætu orðið 160 milljón króna virði

$
0
0

„Við höfum fengið slatta af fyrirspurnum,“ segir Sigþór Bragason, fasteignasali hjá Gimli, en þeir eru meðal annars með tæplega 200 fermetra einbýlishús til sölu á besta stað á Seltjarnarnesi. Vandinn er þó að brunatjón er verulega mikið, á húsinu og líklegt að það verði rifið, verði það selt. Verðið fyrir húsið er 53,5 milljónir króna, en kaupandinn fær aftur á móti 25 milljónir endurgreiddar til þess að gera húsið upp. Raunverðið fyrir brunarústirnar eru því 28,5 milljónir króna, fyrir nákvæmlega 182,9 fermetra.

 

31017-brunahus

 

Það er Landsbankinn sem á húsið, en eigandinn missti það til bankans. Hundur mannsins drapst í eldsvoðanum, en engan annan sakaði.

„Ég held að það séu 99 prósent líkur á því að húsið verði endurbyggt,“ segir Sigþór, en skipulagið býður upp á mun stærra húsnæði því hámarksbyggingarmagn á lóðinni eru rúmlega 320 fermetrar. Að því gefnu að fermetraverðið sé 500 þúsund krónur, þá fengjust 160 milljónir fyrir slíka eign á þessum stað.

„Við erum vongóðir um að selja eignina,“ segir Sigþór en aðspurður segir hann fasteignasöluna stundum fá hús sem eru mjög illa farin eftir ýmisskonar tjón.-vg


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652