Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sló óvænt met í spilakassa

$
0
0

Snorri endaði með 990.540 stig í leiknum sem telst mjög gott á heimsvísu og er sennilega Íslandsmet. Heimsmetið, 16 milljónir stiga, hefur staðið frá árinu 1989. Snorri segist, ólíkt öðrum afreksmönnum í spilakössum, lítið hafa spilað leikinn frá því hann var krakki. Hann hafi síðast spilað Galaga fyrir nokkrum árum og í þetta skipti hafi dóttir hans dregið hann á Fredda.
„Ég greip seinast í þetta fyrir um tveimur árum. Ég spilaði þetta helling þegar ég var pjakkur. Við getum sagt að allur blaðapeningurinn hafi farið í þetta. Þetta var uppáhaldsleikurinn í gamla daga. Það var spilasalur við Stórholt og Einholt, rétt hjá gamla DV, sem ég spilaði mikið í. Það fór ansi mikið í þessa spilakassa en þetta var skemmtunin í þá dagana,“ segir Snorri.
Hann segir sér yfirleitt ganga mjög vel í Galaga. „Einhverra hluta vegna var mjög góð stemning og ég var mjög yfirvegaður í leiknum, þannig að mér fannst þetta ekkert mál. Það var nú dóttir mín sem stakk upp á því að við færum á Fredda. Ég var ekkert á leiðinni á Fredda en þetta var skemmtilegt kvöld.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652