Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Skapandi samfélag

$
0
0

Til viðbótar við þá grunnsamfélagsþjónustu sem felst í starfsemi fyrirtækisins er lögð áhersla á ýmsa samfélagslega þætti. Allt frá því að efla og styðja starfsfólk með heilsuvernd, jafnlaunastefnu og vistvænni samgöngustefnu, yfir í að efla forritunar- og tæknimenntun í skólum og jafnvel standa fyrir „off-venue“ tónleikum á Airwaves.
„Meginstarfsemi RB hefur mikið samfélagslegt gildi í sjálfu sér þar sem fyrirtækið ber ábyrgð á grunnstoðum greiðslumiðlunar landsins og tryggir uppitíma og rekstur á fjölmörgum upplýsingatæknikerfum sem eru forsenda þess að fjármálastarfsemi landsins gangi vel fyrir sig. Bæði greiðslumiðlun og fjármálastarfsemi eru gríðarlega mikilvægir þættir í hagkerfum þjóða. Auk þess þarf RB að fara að lögum og fylgja sátt sem Samkeppniseftirlitið gerði við eigendur RB,“ segir Guðmundur Tómas Axelsson, markaðsstjóri RB.

RB hefur ætíð styrkt góðgerðarmál og staðið fyrir ýmsum viðburðum en ákvörðun var tekin 2015 að gerast aðili að Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð, og móta formlega stefnu byggða á þremur helstu stoðum sjálfbærni, sem eru fólk, umhverfið, og efnahagslegur ávinningur.
„RB leggur til dæmis mikið upp úr heilsuvernd og ýmsu tengdu heilsufari starfsfólks. Þar á meðal eru heilsumælingar og vistvænn samgöngusamningur en 45% prósent starfsmanna RB eru á vistvænum samgöngusamningi sem telst nokkuð góður árangur. Við höfum einnig náð góðum árangri í að draga úr launamun kynjanna og á dögunum hlaut RB gullmerki jafnlaunaúttektar Pricewaterhouse Cooper þar sem ekki er marktækur munur á launum kynjanna í fyrirtækinu. Þar að auki gerum við ekki greinarmun á fólki eftir aldri, litarhætti, trúarbrögðum og fleira,“ segir Guðmundur.

Guðmundur Tómas Axelsson, markaðsstjóri RB, segir að mikið sé lagt upp úr heilsuvernd hjá RB. Starfsfólki er boðið upp á heilsumælingar og 45% starfsmanna eru á vistvænum samgöngusamningi. Mynd | Hari
Guðmundur Tómas Axelsson, markaðsstjóri RB, segir að mikið sé lagt upp úr heilsuvernd hjá RB. Starfsfólki er boðið upp á heilsumælingar og 45% starfsmanna eru á vistvænum samgöngusamningi. Mynd | Hari

Meðal þess sem RB hefur gert til að efla starfsfólk sitt er að styðja með ýmsum hætti við tónlistarfólkið sem þar starfar, m.a. með því að skipuleggja „off-venue“ tónleika á Airwaves. „Það er mikið af tónlistarfólki sem starfar hjá okkur og þetta hefur verið skemmtileg leið til að leyfa hæfileikum þess að njóta sín.“

RB hefur ekki farið varhluta af þeim gríðarlega hjólreiðaáhuga sem gripið hefur landann og stendur árlega fyrir hjólamóti í samstarfi við Tind hjólreiðafélag, RB Classic, eitt stærsta götuhjólamót landsins. „Markmiðið er að styðja við hjólaíþróttina sem hefur náð miklum vinsældum hér á landi.“ Meðal nýjunga hjá RB er verkefni sem heitir RB hjálpar, þar sem starfsmönnum býðst að vera í hjálparstarfi að eigin vali í einn dag á ári á fullum launum. „Þetta gerum við til að efla samkennd og styrkja enn frekar góðagerðarstarf.“

RB leggur ýmislegt til samfélagsins, meðal annars með því að vera stofnaðili og aðili að sjóðnum Forritarar framtíðarinnar sem hefur það markmið að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hægt er að sækja um í sjóðinn sem þjálfar kennara til forritunarkennslu og gefur tölvubúnað. „Sjóðurinn er á þriðja ári og erum við á þeim tíma búin að þjálfa 200 kennara í forritunarkennslu og gefa hundruð tölva. Þetta eru tölvur sem eru 2 eða 3 ára gamlar og ekki lengur í notkun hjá okkur, en eru öflugar og góðar tölvur sem nýtast vel í skólunum. Það má segja að þetta sé nokkurskonar umhverfisstefna í leiðinni, þar sem við endurnýtum tölvurnar á þennan máta,” segir Guðmundur.
Aðspurður játar hann því að margir hafi orð á því að RB sé mun skemmtilegri vinnustaður en þá óraði fyrir. „Þegar fyrirtæki eru að keppa um starfsfólk skiptir máli hvernig fólki líður með að vinna hjá ákveðnu fyrirtæki, þar skiptir ímynd fyrirtækisins máli. Auk þess er samfélagsleg ábyrgð að verða mikilvægari í öllum fyrirtækjarekstri í dag. Þetta snýst fyrst og fremst um hvernig samfélag við viljum skapa og lifa í.“

Unnið í samstarfi við RB


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652