Vilde
Vilde gengur undir nafninu @ellevillevillde á Instagram en hefur ekki verið dugleg að pósta þar í gengum tíðina. Þar má þó finna skemmtilegar sjálfur af henni, myndir af Evu og mat.

Eva
Evu finnst gaman að djamma og djúsa og endurspeglar instagram hennar það, enda hefur hún verið nokkuð virk. @evamohn2

Isak
Á síðu Isaks má finna ást. Kossar á kinn, vinir og svo bara strákarnir saman. @isakyaki
Sana
Töffarinn Sana er sérstaklega óvirk á veraldarvefnum. Það þýðir þó ekki að ekki sé vert að kíkja á síðuna hennar. @sana_bakkoush
Hin pólitíska Noora póstar myndum af kaffinu sínu, vinum í þynnku og að sjálfsögðu smá rómantík. @loglady99

Chris
Á Instagrami Chris má finna grín og glens, djammið og myndir af Sönu. Þar er meðal annars myndin fræga úr annarri seríu þar sem Sana heldur á bjór. @stas_a_vaere_chris

Jonas
Instagram Jónasar er @jonas9000. Þar má finna ýmsar myndir af genginu í skólanum, vinum hans og nokkrar gamlar krúttlegar myndir af honum og Evu.