Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Innflytjandinn: Átti að verða múrari en vildi komast í háskóla

$
0
0

„Ég var 21 árs þegar Múrinn féll og ég held að fátt hafi haft jafn djúpstæð áhrif á líf mitt. Allt samfélagið breyttist en það sem hafði einna mest áhrif á mitt líf var að allt í einu gat ég gert það sem mig langaði til,“ segir Marion Lerner.

Marion ólst upp í Magdeburg þar sem hana dreymdi um að mennta sig í háskóla. Hún vissi samt að sá draumur myndir líklega ekki rætast.
„Í Austur-Þýskalandi fengu mjög fáir leyfi til að fara í menntaskóla. Pólitíkin var þannig að þú áttir ekki að láta þig dreyma of mikið heldur gera það sem var skynsamlegt og gerði gagn fyrir samfélagið. Það var álitið að það þyrftu ekki svo margir að fara í háskólanám, fólk átti frekar að fara í iðnnám og það var það sem ég þurfi að gera,“ segir Marion sem lærði til múrara í iðnskólanum í Magdeburg. Hún vann sem lærlingur með náminu en segir starfið ekki hafa hentað sér. „Ég var sextán ára og mjög lítil og grönn. Þetta var útivinna í miklu frosti og ég var oft svo þreytt að ég sofnaði standandi. Ég man þegar ég fékk skólabækurnar sem fjölluðu um byggingarefni og vélar þá fór ég bara að gráta. En með tímanum varð ég stolt af mér, það gaf mér sjálfstraust að geta þetta.“

Þegar Marion kláraði iðnnám og stúdentspróf átti hún að fara í byggingarverkfræði, sem hún hafði engan áhuga á. „Ég var tvítug og atvinnulaus sem var illa séð og eiginlega ólöglegt. En þá féll Múrinn og ég flutti til Berlínar og gat farið í Humbolt-háskólann,“ segir Marion sem lærði menningar-, félags- og uppeldisfræði. „Ég var mjög virk í ungliðapólitíkinni og kvennabaráttu, öll orkan fór í að taka þátt í breytingunum. En á sama tíma var maður óöruggur því skilaboðin voru þau að allt sem maður hafði lært áður væri ekki lengur gilt.“

Eftir að Múrinn féll gat Marion í fyrsta sinn ferðast til útlanda og árið 1994 bauð móðir hennar henni með sér til Íslands. „Ég upplifði það mjög sterkt á ferðalaginu að mig langaði til að koma hingað aftur og læra íslensku,“ segir Marion sem byrjaði að læra íslensku meðfram náminu í Þýskalandi og fékk síðar styrk til að koma til Íslands, og hefur búið hér síðan. Til að byrja með vann hún sem leiðsögumaður og þýðandi með doktorsnámi en í dag er hún lektor í þýðingafræði við Háskóla Íslands.

„Maður reynir að finna sín tækifæri í lífinu og vinnur út frá þeim. En ef ég hefði vitað hversu erfitt það yrði að vera útlendingur að fóta sig í nýju landi þá kannski hefði ég ekki komið. Það er ekki beint gott fyrir sjálfstraustið að geta ekki tjáð sig og upplifa sig alltaf eins og barn. Manni finnst maður ekki geta neitt, þrátt fyrir að hafa áður byggt upp starfsferil í öðru landi. En svo smám saman fer maður að verða stoltur af því sem maður hefur yfirstigið, að hafa byggt upp nýjan feril og unnið úr þeirri áskorun að feta sig í nýju landi.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652