Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Evrópumeistarar í lyfjanotkun

$
0
0

Það hriktir í undirstöðum ASÍ eftir niðurstöðuna í formannskjöri innan VR sem er stærsta aðildarfélagið innan ASÍ með 32 þúsund meðlimi.

Ragnar Þór Ingólfsson, sem sigraði með talsverðum yfirburðum, hefur lýst því yfir að hann sitji ekki miðstjórnarfundi ASÍ meðan Gylfi Arnbjörnsson, núverandi forseti ASÍ, er við völd. En er það klókt? Forseti ASÍ á að framkvæma vilja miðstjórnar og gæti hann ekki lent úti á berangri?
„Ég veit það ekki. Það verður á endanum alltaf sameiginleg ákvörðun stjórnarinnar hvort við tökum sæti í miðstjórn. Ég er hinsvegar með vantraust félaga á ASÍ í farteskinu. Það getur vel verið að það fari fulltrúi VR í miðstjórn þótt ég geri það ekki. Kannski er betra að vinna að breytingum innanfrá.“
Ólafía B. Rafnsdóttir, sem laut í lægra haldi í kjörinu, hefur verið varaforseti ASÍ en tók ákvörðun í kjölfar úrslitanna að segja sig frá þeirri stöðu og stöðu varaformanns Landssambands íslenzkra verzlunarmanna. Gylfi verður hinsvegar áfram forseti í það minnsta næstu tvö árin.

32573- ragnar-VR

Ræð ekki í skilaboðin

„Það er ekkert launungarmál að ég stefni á að velta Gylfa Arnbjörnssyni. Ég ætla þó ekki að reyna að setjast í stólinn hans. Mér er nokkuð sama hver verður formaður, svo lengi sem það er ekki hann.“
Ragnar segist hafa fundið mikinn meðbyr en hann hafi alls ekki átt von á svo afgerandi niðurstöðu. Hann segir að óánægja með Salek-samkomulagið og ASÍ eigi lykilþátt í afgerandi sigri hans í kosningunum. Ólafía hafi tekið sér sterka stöðu við hlið núverandi forseta ASÍ þegar óánægja með hann var sem mest.
Forysta ASÍ hefur verið fámál um þessi tíðindi.
„Ég kann ekki að leggja mat á hvaða skilaboð eru í þessu fólgin,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar og 2. varaforseti ASÍ. Það er ekki mitt að fjalla um niðurstöðu félagsmanna í formannskosningum í öðru félagi. Við virðum kosninguna og tíminn verður bara að leiða í ljós hvaða áhrif hún hefur.“

32443 - olafia_b_rafnsdottir_formadur_2016

Fjandsamlegt umhverfi

En Ragnar segist einnig telja að mikil óánægja með launahækkun Ólafíu hafi ráðið úrslitum en hún hafi verið úr öllum takti við það sem var samið um fyrir félagsmenn. En þetta er ekki fyrsta hallarbyltingin sem hefur verið gerð innan VR og hættan er alltaf sú að meirihluti stjórnar beiti sér gegn nýjum formanni og þeim breytingum sem hann vill innleiða. Er hætta á því í þessum tilfelli?
„Ég veit það bara ekki. Ný stjórn hefur ekki komið saman en ég vona auðvitað að þau standi við bakið á mér. Ég gekk sjálfur í gegnum hallarbyltingu í VR árið 2009, þegar Kristinn Örn Jóhannesson vann formannsslag en hafði hvorki stuðning stjórnar né skrifstofu. Umhverfið sem mætti honum var mjög fjandsamlegt og óska engum að þurfa að vinna í slíku umhverfi. Ég held þó að niðurstaðan núna hafi verið of afgerandi til að stjórnin geti leyft sér að hafa hana að engu. Ég bjartsýnn á að við getum unnið saman að góðri niðurstöðu. Það vill enginn stríð innan félagsins.“

Glaður og hrærður

„Kjör Ragnars Þórs Ingólfssonar í embætti formanns VR er ekki til þess fallið að auka bjartsýni á að næsta lota kjarasamninga fari fram í friði og spekt,“ segir í leiðara Viðskiptablaðsins en blaðið virðist ekki sérlega hrifið af þessum breytingum. Ragnar Þór er spyrtur saman við, formann Verkalýðsfélags Akraness, sem það segir þann verkalýðsforingja sem „undanfarin ár hefur verið einna herskáastur í orðræðu og athöfnum“. Það sé ekki til að auka bjartsýni að Vilhjálmur skuli telja Ragnar Þór sinn bandamann.
„Gagnrýni úr þessari átt, sýnir að við erum á réttri leið,“ segir Vilhjálmur Birgisson. „Það eru vatnaskil í íslenskri verkalýðsbaráttu að maður eins og Ragnar Þór nái kjöri. Stórsigur hans kemur ekki á óvart en þetta er fyrsta skrefið í átt til raunverulegra breytinga,“ segir hann og bætir við: „Ég er satt að segja mjög glaður og hrærður yfir þessu.“
Vilhjálmur segir að tengsl Gylfa Arnbjörnssonar við hinn almenna félagsmann séu sáralítil og traustið við frostmark. Hann segist ekki í neinum vafa um að þetta þýði breytingar innan ASÍ. „Það er auðvelt að fá að vera í liðinu og segja það sem forystan vill að maður segi. En stuðningur hennar skiptir engu máli, það er stuðningur félagsmanna sem gildir. Við þurfum einstakling úr röðum verkafólks með hjartað á réttum stað. Ekki manneskju sem talar máli atvinnurekenda inni í ASÍ.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652