Svæðisstjórn hefur verið virkjuð í Árnessýslu vegna fjölda ökutækja sem sitja fastir á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði.
Þriggja bifreiða árekstur varð á Hellisheiði en meiðsli ekki alvaraleg. Stutt er í að Hellisheiði verði hreinsuð af bifreiðum sem hafa setið þar fastar.
Mjög slæmt veður er í uppsveitum Árnessýslu og skiptir fjöldi bifreiða, sem sitja fastar, tugum. Fjölmargar bifreiðar sitja fastar á Lyngdalsheiði, Mosfellsheiði og við Þingvelli. Þá hafa einnig borist tilkynningar um fastar bifreiðar á Laugarvatnsvegi og Biskupstungnabraut.
Stefnt er að opnun fjöldahjálpastöðva innann skamms.
Lögregla biður ökumenn og íbúa uppsveita Árnessýslu að halda kyrru fyrir og virða lokanir Lögreglu og Vegagerðarinnar. Frekari upplýsingar verða veittar eftir því sem aðgerðum vindur fram.
Lokanir hafa verið settar á Biskupstungnabraut, Lyngdalsheiði, Þingvallaveg og Mosfellsheiði.
10.2.2018 17:20
Ábending frá veðurfræðingi
Litur: Gulur. Í kvöld bætir heldur í vind SV-lands og þar með í skafrenning. Á V-landi skellur á blindbylur nú síðdegis og í kvöld. Vestantil á N-landi, frá Skagafirði og vestur á firði verður mikil ofankoma í kvöld og í nótt og fyrramálið skafrenningur og hvasst. Í fyrramálið, líklega eftir kl. 9 gerir byl með NV stormi og snjókomu SV-lands með hléum fram á kvöld.
Litur: Appelsínugulur: Suðaustanlands, einkum frá Vík austur í Jökulsárlón verður NV 23-25 m/s, nánast ekkert skyggni í glórulausum skafrenningi. Lagast ekki að gagni fyrr en seint í nótt og fyrramálið.
Lokanir – Vegna veðurs eru þessir vegir lokaðir:
Hellisheiði
Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði
Biskupstungnabraut
Holtavörðuheiði
Fróðárheiði
Milli Markarfljóts og Jökulsárlóns
Suðurstrandarvegur
Vegna lokunar á fjallvegunum milli Faxaflóa og Suðurlands er bent á að Suðurstrandarvegur er opinn. Aka þarf um Grindavík þar sem Krýsuvíkurvegur er ófær.
Óveðurstímar og hugsanlegar lokanir 10.-11. febrúar (Uppfært kl. 17:15)
Í dag og fram á sunnudag verða aðstæður mjög erfiðar, gangi veðurspá eftir, og þjónusta takmörkuð þess vegna. Vegfarendur mega gera ráð fyrir að vegir lokist fyrirvaralaust og þjónustu hætt. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum um færð á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777
The post Ófærð – Stefnt er að opnun fjöldahjálpastöðvar í Grímsnesi appeared first on Fréttatíminn.is.