Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Breka Gunnarssyni, 26 ára
Hann er 176 sm á hæð, dökkhærður með axlarsítt hár og brún augu. Talið er að Breki sé klæddur í úlpu og íþróttskó, en að öðru leyti er ekki vitað um klæðaburð.
Síðast er vitað um ferðir hans í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gærkvöld.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Breka, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.
The post Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Breka Gunnarssyni, 26 ára appeared first on Fréttatíminn.is.