11.2.2018 kl. 11:15 – Lokanir og erfiðar aðstæður
Þessir vegir eru lokaðir (þar er akstursbann):
Hellisheiði – Þrengsli – Biskupstungnabraut – Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Lyngdalsheiði – Fróðárheiði – Brattabrekka – Holtavörðuheiði – Vatnsskarð – Þverárfjall – Öxnadalsheiði – Mývatns- og Möðrudalsöræfi – Súðavíkurhlíð er lokuð vegna snjóflóðahættu.
Auk þessara lokana er víða ófært eða ekki ferðaveður. – Lokanir á öllum fjallvegum á höfuðborgarsvæðinu
Skoðað verður með mokstur á Þverárfjalli, Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Hofsós – Siglufjörður kl: 13:00
Búast má við því að vegkaflinn frá Markarfljóti að Vík lokist aftur um 12:00. Búast má við því að sú lokun muni vara fram á mánudag.
Ábending frá veðurfræðingi 11. feb. kl. 10:15
Litur: appelsínugulur
SV-lands brestur á með V stormi, 17-22 m/s. Snjókoma, skafrenningur og afar lítið skyggni. Lagast um tíma eftir hádegi, en versnar síðan aftur fram á kvöld. Einnig Hellisheiði og vegi fyrir austan Fjall. Í Mýrdal gerir blindbyl frá um kl. 14.
Í dag og fram á sunnudag verða aðstæður mjög erfiðar, gangi veðurspá eftir, og þjónusta takmörkuð þess vegna. Vegfarendur mega gera ráð fyrir að vegir lokist fyrirvaralaust og þjónustu hætt. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum um færð á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777.
The post Flestar heiðar lokaðar, m.a. Hellisheiði og Þrengsli – Súðavíkurhlíð lokuð vegna snjóflóðahættu appeared first on Fréttatíminn.is.