Bróðir Sylvester Stallone, Frank Stallone er mjög reiður út í þá sem hafa verið að breiða út sögusagnir um að bróðir sinn sé dáinn.
Frank Stallone sagði m.a. á Twitter: „Orðrómur um að bróðir minn sé látinn er rangur. Hvers konar geðveiki, grimmd og sjúkan hug hefur þetta fólk sem er að breiða út svona sögur? “
Þetta er í annað sinn sem að slíkar sögusagnir fara á kreik um stjörnuna en aðdáendur Rocky og Rambo, fengu áfall árið 2016 þegar að samskonar orðrómi var dreift á samfélagsmiðlum sem staðfestu þá dauða hans.
Það er alla vega hægt að staðfest að sögusagnir frá árinu 2016 voru stórlega ýktar.
The post Sögur um andlát Sylvester Stallone fara eins og eldur í sinu um netheima appeared first on Fréttatíminn.is.