Uppfært 16:15
Báðir aðilar úr bílveltunni eru með meðvitund en annar nokkuð slasaður á höfði. Lögregla er lent á vettvangi og sjúkrabílar að lenda. Ekki verður þörf fyrir lokanir á vegum vegna þessa.
Eldra
Viðbragðsaðilar á Suðurlandi ásamt þyrlu LHG hafa verið kallaðir til vegna bílveltu skammt vestan við Lómagnúp. Samkvæmt tilkynningu munu tveir hafa verið í bílnum. Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins.
The post Þyrla LHG kölluð út vegna bílveltu við Lómagnúp appeared first on Fréttatíminn.is.