Flugfreyja flugfélagsins Emirates lést á miðvikudaginn eftir að hafa gengið út úr flugvél félagsins eftir að vélin var færð frá hliði
BBC greinir frá að flugfreyjan hafi verið flutt á nærliggjandi sjúkrahús í flýti en meiðsli vöru á höfði og fótum, hún lést stuttu eftir komuna á sjúkrahúsið.
Upplýsingarnar í kringum slysið eru óljósar á þessum tímapunkti og Ugandan Civil Aviation Authority (CAA) hefur hleypt af stað rannsókn á atvikinu.
Hins vegar sagði Flugmálastjórnin í yfirlýsingu að það virtist að flugfreyjan hefði opnað neyðardyr á flugvélinni áður en hún féll út.
,,Hugsanir okkar og bænir eru með fjölskyldu hennar, og við erum að veita þeim allann mögulegan stuðning og umönnun,“ sagði talsmaður Emirates í yfirlýsingu sinni. „Við munum halda fullri samvinnu við stjórnvöld í rannsókn sinni á þessu máli.“
The post Flugfreyja féll úr Boeing 777 vél og lést appeared first on Fréttatíminn.is.