Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Íslenska ríkið sýknað í héraðsdómi vegna skerðinga lífeyrissjóðsgreiðslna

$
0
0
Íslenska ríkið var sýknað í héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu um að skerðingar vegna lífeyrissjóðsgreiðslna yrðu dæmdar ólöglegar. Grái herinn, félagasamtök eldri borgara fjölmennti til þess að vera við uppkvaðningu dómsins í morgun

Ef stefnandi áfrýjar dómnum sem er líklegt, þá verður málið næst tekið upp í Landsrétti.

Dómsúrskurður verður birtur hér á síðunni, þegar hann hefur verið birtur á heimasíðu Héraðsdóms Reykjavíkur.

Dómsuppkvaðning, fór fram þriðjudaginn 27. mars kl. 11.40 í dómssal 202 í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli því sem

Flokkur fólksins stóð að, fyrir hönd eldri borgara almennt um hvort ríkissjóður verði að greiða öllum þeim eldri borgurum sem skertir voru vegna lífeyrissjóðsgreiðslna sinna, til baka skerðingar sem þeir sættu fyrir janúar og febrúar 2017.

Vegna þess að lög voru sett afturvirkt þegar upp komst að lög sem ríkið taldi sig vinna eftir, kváðu ekki skýrt á um að lífeyrir frá almannatryggingum mætti skerða vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.

The post Íslenska ríkið sýknað í héraðsdómi vegna skerðinga lífeyrissjóðsgreiðslna appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652