Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um sálfræðiþjónustu í fangelsum og að a.m.k. einn sálfræðingur verði starfandi í hverju fangelsi á landinu

Fréttatíminn birti á dögunum frétt þar sem að fyrirkomulagið í fangelsum var gagnrýnt og m.a. vitnað til þess að einn fangi hefði beðið um sálfræðiaðstoð ítrekað án þess að við því hafi orðið en aðeins fjórir sálfræðingar vinna hjá stofnunni og þar af þrír í Reykjavík en fangelsin eru víða um land.
Endaði það mál með sjálfsvígi fangans. Það er því gleðilegt að sjá viðbrögð þingsins nú og vonandi að málið hljóti fljóta afgreiðslu hjá öllum flokkum þar sem um er að ræða heilsuverndarmál og jafnframt meiri líkur á að betrun nái fram að ganga en þar eru t.d. norðmenn fremstir í flokki með litla endurkomu fanga vegna góðs árángurs þeirra í betrun fanga í fangelsum þar í landi.
Fluttningsmenn tillögunnar ásamt Helgu Völu eru þau : Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir.
Tillagan er efnislega þannig ,,Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að sjá til þess að frá og með 1. september 2018 verði að minnsta kosti einn sálfræðingur að jafnaði starfandi í hverju fangelsi á landinu með fasta starfsstöð í viðkomandi fangelsi. Þannig verði föngum tryggt aðgengi að sálfræðiþjónustu innan veggja fangelsanna þeim að kostnaðarlausu. Ráðherra hafi samráð við Fangelsismálastofnun og Sálfræðingafélag Íslands um tilhögun þjónustunnar, m.a. um meðferð sem veitt er, fjölda fanga á hvern sálfræðing o.fl.
Hjá Fangelsismálastofnun starfa fjórir sálfræðingar í þremur stöðugildum. Sálfræðingarnir sinna áhættu- og þarfamati, sálfræðilegri meðferð, ráðgjöf og stuðningi, starfsemi meðferðarganga á Litla-Hrauni ásamt meðferðarfulltrúa, kennslu, umsjón og uppbyggingu sálfræðistarfs, ráðgjöf innan Fangelsismálastofnunar varðandi einstök mál og rannsóknum. Þeim er ætlað að meta hættuna sem samfélaginu stafar af einstaklingum og þannig huga að almannahagsmunum ásamt því að veita föngum viðeigandi sálfræðilega meðferð.
Af þeim fjórum sálfræðingum sem starfa hjá Fangelsismálastofnun eru þrír staðsettir í Reykjavík en sá fjórði á Litla-Hrauni. Sálfræðingarnir sinna öllum fangelsum á landinu sem og skilorðseftirliti. Viðvera sálfræðinga er mismunandi eftir fangelsum. Á Litla-Hrauni er föst viðvera sálfræðings, á Hólmsheiði og Sogni er að jafnaði vikuleg viðvera en á Akureyri og á Kvíabryggju er ekki föst viðvera.

Áhersla fangelsisvistar á að vera á betrun fanga með það að markmiði að fækka endurkomum í fangelsi. Eins og áður segir eru þrjú stöðugildi sálfræðinga í fangelsum landsins. Enginn sálfræðingur hefur fasta viðveru á Akureyri eða Kvíabryggju, einu sinni í viku mætir sálfræðingur á Hólmsheiði og Sogn en einn sálfræðingur hefur fasta viðveru á Litla-Hrauni. Þetta getur ekki talist nægileg viðvera sálfræðinga í fangelsum miðað við fjölda fanga landsins. Í núverandi kerfi er meginmarkmið þjónustu sálfræðinga að huga að almannahagsmunum með því að meta hættuna sem samfélaginu stafar af einstaklingum ásamt því að veita þeim viðeigandi sálfræðimeðferð í samræmi við niðurstöðu þess mats.
Frelsissvipting er afar íþyngjandi úrræði hverjum einstaklingi og í sjálfu sér andlega skaðleg. Stjórnvöldum ber skylda til að veita þeim sem er frelsissviptur sálræna aðstoð til að hann hafi möguleika á að koma bættari úr afplánun. Einnig er ljóst að þeir sem dvelja á bak við lás og slá glíma oftar en ekki við fyrri áföll sem mikilvægt er að vinna úr, hvort sem þau áföll tengjast uppvexti, neyslu eða öðru.
Markmið þessarar tillögu er að tryggja að frá og með 1. september 2018 verði tryggt að í öllum fangelsum landsins verði a.m.k. einn starfandi sálfræðingur sem fangar hafi aðgang að sér að kostnaðarlausu. Ráðherra er í tillögunni falið að útfæra nánar með hvaða hætti þjónustan verði veitt.
The post Sálfræðiþjónusta í öllum fangelsum landsins – Þingsályktu Samfylkingar appeared first on Fréttatíminn.is.