Höfuðborgarlistinn er þverpólitískur hópur og samanstendur hann af 46 ólíkum einstaklingum sem eru sammála um að standa vörð um sérstöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar landsins, þannig að hún geti aftur verið stolt allra landsmanna

- Við ætlum að byggja 10.000 íbúðir á kjörtímabilinu, einstök húsnæðisstefna verður sérsniðin fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eru að kaupa sína fyrstu eign.
- Stjórnkerfi og skipulag Reykjavíkurborgar verður einfaldað, auk þess sem aðgengi höfuðborgarbúa að Borgarstjóra, kjörnum fulltrúum og stjórnkerfinu verður auðveldað.
- Farið verður í tafarlausar aðgerðir í mengunarmálum og hljóðvist.
Formaðurinn kynnir framboð og stefnumál Höfuðborgarlistans.
Posted by Höfuðborgarlistinn on 31. mars 2018
HÖFUÐBORGARLISTINN vill jafnræði milli framboða
Framsetning fréttar í Morgunblaðinu og mbl.is í dag sem fjallar um framboðin
eru að mati undirritaðrar og stjórnar ekki hlutlaus. Fréttatilkynning (sjá nánar hér fyrir neðan send var til ofangreindra hefur enn ekki verið birt á mbl.is þrátt fyrir beiðni þess efnis.
Fyrir hönd Höfuðborgarlistans hefur undirrituð gert athugasemdir við frétt mbl.is og Morgunblaðsins vegna túlkunnar skoðanakönnunar á fylgi flokkana sem birt var í Morgunblaðinu í morgun og síðar á mbl.is og víðar.
Meðfylgjandi athugasemd var send til Morgunblaðsins og mbl.is. Við þetta er að bæta að undirrituð telur sérstakt að ekki hafi verið tekið viðtal við undirritaðan formann og oddvita sem hefur lýst yfir framboði, en við alla aðra sem í framboði eru til sveitarstjórnarkosninga í borgarstórn Reykjavíkur.
Óskað hefur verið eftir því að undirrituð formaður og oddviti Höfuðborgarlistans fái að tjá sig eins og aðrir sem lýst hafa yfir framboði. Ályktanir sem dregnar eru fram í Morgunblaðinu og mbl.is og víðar eru skoðanamyndandi á umræddri skoðanakönnun, óskað hefur verið eftir því að neðangreind fréttatilkynning verði birt vegna frétta Morgunblaðsins og mbl.is. Hægt er að hugsa sér hvers eðlis slíkur fréttaflutningur er og hvaða hagsmunir liggi þar að baki. Þess fyrir utan er sérstakt að ekkert sé haft eftir framboði Höfuðborgarlistans. Velti því fyrir mér hvort það sé búið að lýsa yfir framboði.
Eins og alltaf er undirrituð tilbúin til samstarfs við Morgunblaðið sem hingað til og myndi fagna því að fá að tjá mig um þetta og stefnumál Höfuðborgarlistans á þeim vettvangi.
Vil taka það fram undirrituð er tilbúin í þessa baráttu sem framundan er og þetta mótlæti mun styrkja okkur. Það skal tekið sérstaklega fram Höfuðborgarlistinn ætlar að láta rödd sína heyrast, leyfum kjósendum að velja í vor. Takk fyrir að lesa þennan póst.
Reykjavík 29. mars. 2018
Fh. Höfuðborgarlistans
Formaður og oddviti listans
Björg Kristín Sigþórsdóttir
S. 771 5501
Hér fyrir neðan er tilkynnig Höfuðborgarlistans.
Fréttatilkynning:
Stjórn Höfuðborgarlistans vill koma á framfæri athugasemdum við fréttaflutning í Morgunblaðinu í dag og fréttir annarra miðla í framhaldinu, vegna framboðs okkar til borgarstjórnarkosninga 2018.
Höfuðborgarlistinn er þverpólitískur listi íbúa í Reykjavík, sem hefur tilkynnt um framboð sitt til borgarstjórnarkosninga í vor.
Höfuðborgarlistinn gerir athugasemdir um fullyrðingar þess efnis að meirihlutinn í Reykjavík haldi. Höfuðborgarlistinn tilkynnti framboð sitt kl. 15.00 sl. sunnudag og hóf þar með formlega keppni um borgina, umrædd skoðanakönnun er samkvæmt frétt Morgunblaðsins, gerð áður en framboðið var birt. Engin veit á þessari stundu hvort meirihlutinn haldi. Umrædd frétt vegna þessarar skoðanakönnunar er því með öllu ómarktæk og umræða á þessari stundu um að meirihlutinn haldi er marklaus.
Reykjavík 29. mars. 2018
Fh. Höfuðborgarlistans
Formaður og oddviti listans
Björg Kristín Sigþórsdóttir
S. 771 5501
Umrædd frétt á mbl.is
Auk hennar birt í Morgunblaðinu í morgun. Umræddar fréttir hafa síðan birtar og eða efni notað í öðrum öflugum fréttamiðlum. Eðlilegt er að fréttamiðlar gefi nýju framboði tækifæri eins og öðrum.
mbl.is Innlent | Kosningar | mbl | 29.3.2018 | 13:22 | Uppfært 18:00
„Meirihlutinn virðist ætla að halda“
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Eyþór Arnaldsson, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins …
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Eyþór Arnaldsson, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.Ljósmyndir/mbl.is
„Það virðist ekki ætla að breytast að meirihlutinn í Reykjavík heldur, eftir nokkrar kannanir í röð sem sýna það,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri. Morgunblaðið birti í morgun könnun þar sem Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn mælast langstærstir flokka í borginni.
Samfylkingin stærst með átta borgarfulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn næststærstur með sjö. Miklu munar á fylgi flokkanna eftir hverfum borgarinnar.
Mikill munur á fylgi eftir hverfum
Frétt af mbl.is
Mikill munur á fylgi eftir hverfum
Grétar Þór segir fylgi Samfylkingarinnar haggast lítið og telur Sjálfstæðisflokkinn ekki ná þeirri sókn sem til stóð að leggja upp í. „Alla vega ekki enn þá,“ segir Grétar en bætir þó við að mikil umræða hafi verið um borgarmálin síðastliðnar vikur og kjósendur hafi ekki getað flúið undan þeirri umræðu.
Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur.Ljósmynd/Auðunn Níelsson
„Það getur vel verið að fólk eigi eftir að setja sig betur inn í hlutina, en meginmálefnin eru komin fram fyrir þó nokkru síðan, og borgarmálin hafa verið áberandi í fjölmiðlaumfjöllun og umræðuþáttum. Kjósendur vita hvað þeir eru að fara að kjósa um hvort sem þeir eru búnir að setja sig í kosningagírinn eða ekki,“ segir Grétar.
Spurður hvort einhver dæmi séu um miklar breytingar á fylgi flokka í aðdraganda kosninga segir Grétar nýjasta dæmið vera andstöðu Framsóknarflokksins við moskuna rétt fyrir síðustu kosningar þar sem fylgi flokksins fór úr tveimur, þremur prósentum upp í tíu prósent á skömmum tíma.
The post Höfuðborgarlistinn býður fram í Reykjavík appeared first on Fréttatíminn.is.