Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hefur unnið hörðum höndum að því að sækja rétt fólks sem hefur verið hlunnfarið um sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg
Bandalagið vakti athygli á því á dögunum að borgin hefur dregið lappirnar í málinu en með dómi Hæstaréttar þykir sýnt að fjöldi manna sem átti rétt á sérstökum húsaleigubótum fékk þær ekki. Borgarstjóra var ritað bréf vegna málsins um miðjan janúar, en fátt er um svör.
Fjallað var einnig um málið í Fréttablaðinu nýlega en þar er rifjað upp að Reykjavíkurborg neitaði að greiða sérstakar húsaleigubætur til öryrkja sem bjuggu í íbúðum á vegum Brynju, hússjóðs ÖBÍ. Brynja er sjálfseignarstofnun á vegum ÖBÍ sem á nú ríflega 800 íbúðir. ÖBÍ lagði borgina með dómi sem kveðinn var upp í júní árið 2016.
Framkvæmd Reykjavíkurborgar að greiða þeim ekki sérstakar húsaleigubætur var ólögleg. Frá þeim tíma hefur hins vegar gengið illa að fá réttlætinu fullnægt. „Það er margt sem okkur þykir miður hvað þetta varðar,“ segir Aðalsteinn Sigurðsson, lögmaður ÖBÍ í viðtali við Fréttablaðið. „Fyrir það fyrsta greiðir Reykjavíkurborg ekki dráttarvexti nema fjögur ár aftur í tímann og ber fyrir sig fyrningu.“
Reykjavíkurborg hefur unnið þannig að þeim sem ætluðu að sækja um sérstakar húsaleigubætur hjá borginni var snúið við í dyrunum og sagt að það hefði ekkert upp á sig að sækja um því erindinu yrði neitað hvort eð er.
„Aðilinn sem stefndi málinu upphaflega þurfti að fara þrisvar sinnum til að sækja um sérstakar húsaleigubætur,“ segir Aðalsteinn við Fréttablaðið. „Í þriðja skiptið fékk hún lögmann með sér og þá fékk hún að sækja um.“ Því er nokkuð stór hópur sem telur sig hlunnfarinn af ólögmætri framkvæmd Reykjavíkurborgar.
Öryrkjabandalagið hefur reynt að krefjast úrbóta fyrir hópinn en árangurinn er takmarkaður enn sem komið er. Fréttablaðið fékk þær upplýsingar frá Reykjavíkurborg að borgarstjóri hafi vísað málinu til skoðunar á Velferðarsviði og hjá borgarlögmanni.
Reykjavíkurborg dregur lappirnar í að fylgja skýrum fyrirmælum Hæstaréttar um sérstakar húsaleigubætur. Kallað er eftir því að borgin hætti lagatæknilegum útúrsnúningum annars kunni að þurfa að höfða nýtt dómsmál til að ná fram réttlæti fyrir umbjóðendur ÖBÍ.
Hæstiréttur dæmdi fyrir einu og hálfu ári að borginni bæri að greiða sérstakar húsaleigubætur til leigjenda hjá Brynju hússjóði í Reykjavík, eftir sömu reglum og giltu um aðra leigutaka. Í fjölmörg ár hafnaði borgin öllum umsóknum um slíkar bætur á þeim grunni að leigutakar hjá Brynju ættu aldrei rétt á sérstökum húsaleigubótum. Þetta taldi héraðsdómur ekki standast stjórnsýslulög og tók Hæstiréttur undir þá niðurstöðu. Málið á sér margra ára forsögu en allt frá árinu 2009 hefur ÖBÍ gert athugasemdir við þessa afgreiðslu borgarninar. Eftir að niðurstaða Hæstaréttar lá fyrir hefur borgin neitað að bæta fyrir stóran hluta þeirra réttindi sem skjólstæðingar ÖBÍ voru hlunnfarnir um. Borgin hefur borið fyrir sig fyrningu og formsatriði.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ, bendir á það í bréfi sem sent var borgarstjóra á dögunum, að það geti seint talist réttlát niðurstaða að „borgarstjórn sem brýtur lög, hagnist á því á kostnað brotaþola sem í þessu tilfelli eru öryrkjar sem búa margir við afar slæm kjör“. Afgreiðslan minni á afgreiðslu ákveðinna fjármálafyrirtækja sem starfað hafi í skjóli vogunarsjóða eftir hrun og engar siðferðislegar skyldur haft gagnvart viðskiptamönnum sínum „frekar en borgarstjórn sem kennir sig við velferð“.
Í bréfinu er vísað til fyrri samskipta við borgarstjóra. Þar á meðal um að borgin telji einungis þá sem sannanlega hafi sótt um þessar bætur geti átt rétt á þeim frá þeim tíma sem sótt var um. Þessu hafni ÖBÍ. „Enda þekkjum við mörg dæmi þess að umbjóðendum bandalagsins hafi verið snúið við af starfsfólki borgarinnar þegar þeir hafi reynt að sækja skriflega um sérstakar húsnæðisbætur. Þá var það opinber stefna borgarinnar allt fram að dómi hæstaréttar í júní 2016 að leigjendur hjá Brynju hússjóði ættu ekki rétt á sérstökum húsaleigubótum. Af því leiddi bæði að starfsfólk borgarinnar ráðlagði umbjóðendum okkar frá því að sækja um bæturnar auk þess sem fólk sækir almennt ekki um það sem það veit að því verður synjað um,“ segir meðal annars í bréfinu.
Þuríður Harpa biðlar til borgarstjórnar um að láta af lagatæknilegum útúrsnúningum í þessu máli. Öryrkjabandalagið hafi barist fyrir umbjóðendur sína í átta ár og talið að málinu hefði átt að ljúka með dómi Hæstaréttar. Mögulega verði að höfða annað dómsmál til að fá endanlega lausn í málið.
Dómar Hæstaréttar og héraðsdóms Reykjavíkur.
Bréf formanns ÖBÍ til borgarstjóra má finna hér.
The post Fólk hlunnfarið um sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg appeared first on Fréttatíminn.is.