Hér áður fyrr var aðeins þröngur hópur sem “ var á nálinni “, ,,bara eldra fólk“, segir óvirkur fíkill í samtali við Fréttatímann
Ekki er mikið talað um þetta, en þetta er samt sannleikurinn, krakkar sem byrja í neyslu í dag eru ekkert að fara úr grasi og í það að taka í nefið.
Nei þau byrja nefnilega á því að henda sér beint í djúpu laugina, þau hoppa beint út í harða sprautuneyslu.
Auðvitað á þetta ekki við um alla en þetta er bara orðið svo mun algengara en hér áður fyrr þegar að það voru bara eldri aðilar og örfáir yngri að sprauta sig.
Maður er að sjá svo mörg dæmi um það að börn 13-15 ára eru kannski búin að reykja kannabis í nokkrar vikur, fara svo inn á Stuðla eða Vog.
Og kynnast þar aðilum sem hafa aðgang að sterkari efnum og fara að umgangast þá aðila og eru strax komin í þessa sprautuneyslu, sem er greinilega orðin einhver tískubylgja á meðal ungra fíkla í dag.
Hér áður fyrr voru aðeins þröngir hópar sem “voru á nálinni“, bara eldra fólk og örfá ungmenni.
Fram kemur á vef SÁÁ:
Á árunum fyrir 1980 sprautuðu íslenskir vímuefnaneytendur sig ekki í æð. Heróín og kókaín voru ekki á vímuefnamarkaðnum og amfetamínið sem hægt hefði verið að sprauta í æð var ekki þannig notað.
Það amfetamín sem notað var hér á landi fékkst hjá læknum og þeir sem neyttu þess voru túradrykkjumenn fæddir fyrir 1950 sem komust aldrei upp á lag með að sprauta efninu í æð. Á þessum árum sáu Íslendingar því bara sprautufíkla í útlöndum.
Það þekktist þó hér á landi eins og annars staðar að örfáir læknar, hjúkrunarfræðingar og lyfjafræðingar sprautuðu sig í æð með sterkum verkjadeyfandi lyfjum.
Með innflutningi á ólöglegu amfetamíni á árinu 1983 skapaðist fyrst grundvöllur fyrir því að sprautufíklar yrðu til á Íslandi. Það voru nær eingöngu stórneytendur kannabisefna sem notuðu amfetamínið sem kom á markaðinn sem amfetamínsúlfat-duft.
Auðvelt var að leysa duftið upp í vatni og sprauta því í æð. Sama ár byrjaði fólk sem hafði sprautað sig í æð með þessum efnum á Íslandi að leita sér lækninga á meðferðarstofnunum fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Sumarið 1983 var gerð nákvæm athugun á vímuefnaneyslu 199 einstaklinga sem innrituðust á sjúkrastöð SÁÁ að Silungapolli.
Í hópnum voru allir sjúklingar sem innrituðust á ákveðnu tímabili. 19 einstaklingar, 15 karlar og 5 konur, höfðu notað amfetamín að minnsta kosti einu sinni í mánuði í eitt ár. 9 einstaklingar höfðu notað efnið einu sinni í viku eða oftar í eitt ár eða lengur eða um 5%.
Aðeins 3 þessara einstaklinga höfðu sprautað þessum efnum í æð eða 5% af hópnum. Tveir þeirra höfðu sprautað sig einu sinni til fimm sinnum en einn einstaklingur hafði sprautað sig að jafnaði vikulega í tvö ár.
The post Beint í nálina – 13 ára börn byrjuð að sprauta sig appeared first on Fréttatíminn.is.