Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tekinn á um 170 km. hraða og 105 þúsundum fátækari

$
0
0
Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Brotin áttu sér flest stað á Reykjanesbraut 

 

Sá sem hraðast ók  mældist á 164 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann viðurkenndi brot sitt og greiddi sekt á staðnum að upphæð 105 þúsund krónur.

Annar ökumaður sem einnig var staðinn að hraðakstri hafði ekki náð 18 ára aldri.

Þá voru þrír ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.

The post Tekinn á um 170 km. hraða og 105 þúsundum fátækari appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652