Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Skipulögð brotastarfsemi – lagt hald á fíkniefni og fjármuni

$
0
0

Skipulögð brotastarfsemi – lagt hald á fíkniefni og fjármuni

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi á Suðurlandi fyrr í vikunni og lagði hald á vel á fjórða hundrað kannabisplantna og á annan tug kílóa af kannabislaufum, en lögregluaðgerðin var hluti af rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi, sem staðið hefur yfir um nokkurt skeið

Á vettvangi var enn fremur lagt hald á verulega fjármuni, en einn maður var handtekinn á staðnum. Þrír til viðbótar voru svo handteknir annars staðar á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Áður hafði lögreglan lagt hald á 1,5 kg af kannabisefnum og nokkuð af e-töflum og kókaíni við húsleit í skrifstofurými í Hafnarfirði í máli sem tengist áðurnefndri rannsókn, en þar var einn handtekinn. Þrír hinna handteknu í þessum málum eru erlendir ríkisborgarar.

Að aðgerðunum komu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi og embætti ríkislögreglustjóra, en rannsókn málsins er jafnframt unnin í samvinnu við tollyfirvöld, pólsku lögregluna, m.a. Asset Recovery Office í Varsjá, og Europol.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005.     Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðum lögregluembættanna.

The post Skipulögð brotastarfsemi – lagt hald á fíkniefni og fjármuni appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652