Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Banda­rík­in, Bret­land og Frakk­land gerðu loftárásir á Sýrland – Bein útsending á fréttaskýringum

$
0
0

Banda­rík­in, Bret­land og Frakk­land gerðu í nótt loftárásir gegn sveit­um Bashars al-Assads Sýr­lands­for­seta

Don­ald Trump flutti ávarp í Hvíta húsinu í nótt „Ég fyr­ir­skipaði að Banda­ríkja­her að fram­- kvæma árás­ir á skot­mörk sem tengj­ast efna­vopna­getu ein­ræðis­herra Sýr­lands, Bashars al-Assads. Sam­eig­in­leg­ar loftárásir með her­sveit­um Frakk­lands og Bret­lands eru nú í gangi – við þökkum ríkj­unum fyrir.“  Loft­árás­irn­ar voru gerðar vegna efna­vopna­árar í Sýrlandi sem drap almenna borgara í Sýrlandi eins og fram hefur komið í fréttum áður.

Bein útsending: 

,,Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkín hafa hert sókn gegn barbarisma og grimmd,“ sagði Trump forseti í Hvíta húsinu klukkan 21:00 staðartíma ( klukkan 2 í nótt ). ,,Það stefnir í það að við séum að skapa saman sterka andstöðu gegn framleiðslu, dreifingu og notkun á efnavopnum,“ bætti hann við.

Loftárásirnar voru gerðar á höfuðborgina, Damaskus, auk tveggja staða nálægt borginni Homs, að sögn yfirmanna í Pentagon.

Sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum sagði að árásin á bandamenn rússa mundi hafa afleiðingar. Rússar höfðu áður varað við hernaðaraðgerðum í Sýr­landi og. Hafa hótað að skjóta niður eld­flaug­ar sem beint yrði gegn her Sýr­lands.

Pentagon tilkynnti að skotmörkin væru aðallaega, vísinda og rannsóknastofnun í Damaskus, sem tengist framleiðslu á efna- og líffræðilegum vopnum. Geymsla efnavopna vestan borgarinnar Homs og svo geymslur efnavopna og mikilvæg yfirstjórn þeirra sem er einnig nálægt Homs

Sýrlenskar sjónvarpsstöðvar segja að herirnir hafi skotið tugum eldflaugua og lýstu því yfir að rannsóknarstöðin í Damaskus hafi verið eyðilögð.

 

The post Banda­rík­in, Bret­land og Frakk­land gerðu loftárásir á Sýrland – Bein útsending á fréttaskýringum appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652