Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fanginn sem strauk af Sogni í nótt, flaug frá Íslandi á fölsuðum skilríkjum

$
0
0

Uppfært: Sindri Þór Stefánsson, sem strauk af Sogni í nótt, fór úr landi á fölsuðum skilríkjum í morgun.

RÚV greinir frá þessu og vitnar í Ólaf Helga Kjartansson, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Sindri er sagður hafa komist af landi brott um svipað leyti og lögreglan fékk tilkynningu um flótta hans úr fangelsinu um klukkan átta í morgun.
Ólafur Helgi vill ekki veita upplýsingar um hvert Sindri fór en heimildir RÚV herma að hann hafi farið til Evrópu.

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nótt kl.01.00

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að Sindri hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar s.l. vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði.

„Sindri er í þróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og er 192 cm á hæð.  Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00. Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt eru beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.“

The post Fanginn sem strauk af Sogni í nótt, flaug frá Íslandi á fölsuðum skilríkjum appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652