Hundaræktunin í Dalsmynni er gjaldþrota
Með úrskurðum héraðsdóms Reykjavíkur var bú Hundaræktarinnar ehf. Dalsmynni í
Reykjavík tekið til gjaldþrotaskipta. Skipaður var skiptastjóri í búinu og skorað er á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráða þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra innan tveggja mánaða skv. tilkynningu í Lögbirtingablaðinu í dag.
Rekstur hundaræktarinnar hefur verið afar umdeildur undanfarin ár eins og við höfum birt áður. Fyrir skömmu, tilkynnti Matvælastofnun um stöðvun starfsemi Hundaræktarinnar í Dalsmynni á grundvelli laga um velferð dýra. Í kjölfarið hætti eigandi búsins rekstrinum.
The post Hundaræktunin í Dalsmynni gjaldþrota appeared first on Fréttatíminn.is.