Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Konan sem var flutt á sjúkrahús í Reykjavík í gær frá Reynisfjöru er látin

$
0
0

Kona sem var flutt slösuð á sjúkrahús í Reykjavík í gær eftir að hafa lent í slysi við Reynisfjöru er látin. Konan hlaut höfuðáverka þegar hún féll á göngustíg sem liggur frá bílastæðinu við Reynisfjöru niður í fjöruna.

Hún var erlendur ferðamaður, fædd árið 1938, og var á ferð um Ísland með fjölskyldu sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Þar segir að tilkynning hafi borist neyðarlínu um kl. 14:30 í gær og að viðbragðsaðilar á Suðurlandi hafi þegar verið kallaðir til.

Konan hafi verið flutt til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar með sjúkrabifreið og svo áfram með þyrlunni til Reykjavíkur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652