Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Siglir um höfin á 10 milljarða lúxus-snekkju

$
0
0

Mark Zuckerberg eigandi og stofnandi Facebook hefur verið orðaður við kaup á meiriháttar lúxus snekkju og sagt hefur verið að verðið hafi verið vel yfir hundrað milljónir dollara eða rúmlega tíu milljarða íslenskra króna. 

Ásett verð var um 15 milljarðar á sölusýningu í Monaco en eigandi snekkjunnar, milljarðamæringurinn Graeme Hart hefur átt snekkjuna undanfarin ár.

Sterkur orðrómur hefur verið um að viðskiptin hafi átt sér stað nú þegar en það fæst ekki staðfest ennþá en Mark Zuckerberg og kona hans Priscilla Chan hafa siglt um heimsins höf á snekkjunni s.l. hálft ár og haft forræði yfir henni. 

Ulysses er 107 metra löng snekkja og var smíðuð í Kleven skipasmíðastöðinni í Noregi. Um borð í snekkjunni eru sundlaugar, billjardstofa, barir, heitur pottur, sauna, líkamsræktarstöð, bíósalur ofl.

Þá er 24 metra bátur um borð og þyrla stendur á þyrlupallinum en einnig eru um borð jeppar ásama fjór- og sexhjólum, sæsleðum, mótorhjólum ofl.ofl..

15 einka svítur eru um borð sem rúma 30 manns. 43 eru í áhöfn og hefur áhöfnin 20 herbergi um borð og hér að neðan eru fleiri myndir og video sem sýna snekkjuna betur.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652