Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Flutti sjö tillögur á fyrsta fundi – En samstarfsfólkið tekur sér launað sumarfrí fram í september, eftir einn fund

$
0
0

,,Sat minn fyrsta borgarstjórnarfund á þriðjudaginn og flutti sjö tillögur. Hlakka til að takast á við komandi verkefni í Velferðaráði sem ég var kosin í og er full tilhlökkunar við að kynna mér allt hjá Mannréttinda- og lýðræðisráði og Skóla- og frístundaráði sem ég er varamaður í. 

Vildi þó óska þess að borgarstjórnarfundir væru ekki lagðir niður í sumar, þar sem ég hef ekki atkvæðisrétt í borgarráði sem á að sjá um málin í sumarleyfi borgarstjórnarfunda. Er enn að reyna að átta mig á því hvernig fundir fara þó í frí.” Segir Sanna Magdalena Mörtudóttir.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, lagði fram bókun þegar lagt var til að borgarstjórn tæki sér sumarfrí eftir fundinn í dag og kæmi ekki saman fyrr en í byrjun september.

Í bókuninni segir: „Kjörnir borgarfulltrúar voru kosnir í vor til að taka á ýmsum mikilvægum málefnum er varða hag borgarbúanna og rætt var um í kosningabaráttunni. Þar vegur húsnæðiskreppan stórt, margir búa við óöryggi á leigumarkaði eða skortir búsetuúrræði og grefur slíkt úr lífskjörum almennings.

Við vorum hingað kosin inn til að taka á málunum og vinna fyrir fólkið sem kaus okkur og því er óásættanlegt að sumarleyfi hefjist strax eftir fyrsta fund borgarstjórnar, áður en að okkur gefst færi á að ræða þau málefni sem kjósendur beindu að okkur í kosningabaráttunni.

Mikilvægt er að marka stefnu í þeim málum sem þola enga bið og því óverjandi að fundir borgarstjórnar séu felldir niður það sem eftir lifir af júlí og ágúst.
Ef þessi tillaga er samþykkt er borgarstjórn að taka sér sumarleyfi frá því á morgun, 20. júní og fram að byrjun september. Sem er óásættanlegt, sérstaklega að taka sér launað frí eftir einn fund, það þykir mér ekki ásættanlegt. Hvar tíðkast það að fá langt launað frí eftir eina vakt?“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652