Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Stærstu tónleikar á Íslandi fyrr og síðar

$
0
0

Guns N’ Roses mætir með 1.300 tonn af búnaði og meira til

Tón­leik­ar rokk­hljóm­sveit­ar­inn­ar Guns N’ Roses, fara fram á Laug­ar­dals­velli næstkomandi þriðjudag, 24. júlí  og verður um að ræða stærstu tón­leik­a á Íslandi, fyrr og síðar.

Sviðið á Laug­ar­dals­velli verður 65 metr­ar og sér­stakt gólf verður verður lagt yfir grasvöll­inn til þess að vernda und­ir­lagið á vell­in­um. Ekk­ert verður til sparað í ljósa­búnaði eða hljóði og flutt­ar verða inn eld­vörp­ur og reyk­sprengj­ur. – Fréttatíminn verður að sjálfsögðu á staðnum.

Mikið umfang er varðandi búnað hljómsveitarinnar og vegur hann um 1.300 tonn samtals og kemur í 21, 40 feta gámum, auk þess sem trailer-vagn­arn­ir, sem flutt­ir eru í sjó­frakt, eru 16 tals­ins. Þá verða 100 tonn af búnaði flutt með flug­frakt. Skv. frétta­til­kynn­ingu frá TVG-Zimsen, sem sér um að flutninga á búnaði.

„Það er mikið gleðiefni að eiga áfram­hald­andi sam­starf við TVG-Zimsen um flutn­ing á búnaði fyr­ir þessa stór­tón­leika. Tíma­áætl­un og skipu­lag eru lyk­il­atriði í viðburðaflutn­ing­um sem þess­um og sér­fræðing­ar þeirra hafa ávallt staðið sig frá­bær­lega varðandi skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd flutn­inga.“ Segir Friðriki Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóra Solstice, í frétta­til­kynn­ingu.

Solstice Producti­ons stend­ur að tón­leik­un­um og hefur TVG-Zimsen haft sam­starfi við fyr­ir­tækið í tengsl­um við Secret Solstice-tón­list­ar­hátíðina s.l. tvö ár. Tón­leik­ar Guns N’ Roses verða sann­ar­lega stærstu tón­leik­ar sem farið hafa fram á Íslandi,“ seg­ir jafnframt til­kynn­ing­u frá TVG-Zimsen

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652