Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

$
0
0

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 300 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með um fimmtán F-15 orrustuþotur. 

Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 31. júlí til 08. ágúst.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Ráðgert er að verkefninu ljúki í lok ágúst. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia, en samanber samning við utanríkisráðuneytið annast Landhelgisgæsla Íslands framkvæmd varnartengdra verkefna samkvæmt varnarmálalögum nr. 34/2008.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652