Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Forsætisráðherrahjónin heimsækja Íslendingaslóðir

$
0
0

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og eiginmaður hennar, Gunnar Sigvaldason, heimsækja Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum 2.-7. ágúst nk. 

Ráðherrahjónin verða heiðursgestir á Íslendingahátíðum sem haldnar verða í Gimli í Manitoba og Mountain í Norður-Dakóta og munu taka þátt í hátíðarhöldum í tengslum við þær. Ráðherrahjónin verða viðstödd ýmsa menningarviðburði og munu heimsækja staði sem tengjast vesturförunum.

Forsætisráðherra mun einnig eiga fund með Brian Pallister, forsætisráðherra Manitoba, Rochelle Squires, ráðherra Manitoba fyrir sjálfbæra þróun og stöðu kvenna, og Janice C. Filmon, fylkisstjóra Manitoba.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652