Hann skoðaði einnig hvað reyndist þeim auðvelt í starfi og hvaða áskoranir kæmu fram á fyrstu mánuðunum og hvernig þeir unnu úr þeim. Enn fremur kannaði Andri Rafn hvernig kyn eða kyngervi birtist í frásögnum þeirra.Körlum hefur fækkað verulega í stétt kennara, ekki aðeins hér á landi heldur er það tilhneiging víðar að konur séu í meirihluta kennara á flestum skólastigum. „Nýliðun í kennarastétt er ein þeirra áskorana sem við stöndum frammi fyrir í íslensku menntakerfi. Til þess að efla menntun, og þar með samkeppnishæfi okkar til framtíðar, er mikilvægt að við styðjum vel við kennarana okkar og til þeirra starfa komi hæft og fjölbreytt fólk. Grundvöllur allrar fagmennsku er góður kennari,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir sem fagnaði framtaki Andra Rafns þegar hann afhenti henni eintak af niðurstöðum sínum.
Í verkefninu kemur meðal annars fram að kennararnir sem rætt var við væru allir mjög sáttir við sína fyrstu önn í kennslu og stefndu á að vinna áfram sem kennarar, þeir sögðu að kosturinn við starfið væri að það væri oftast mjög gefandi og skemmtilegt og byði upp á mikla fjölbreytni. „Viðmælendur mínir voru nokkuð sammála um hvað reyndist þeim auðvelt og hvað hefði verið erfitt þessa fyrstu mánuði.