Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Líkamsárás í Garðabæ – lögregla óskar eftir að tala við mann, með ljósan hund og konu sem var að skokka

Líkamsárás í Garðabæ – lögregla leitar vitna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar árás á stúlku í Garðabæ fimmtudaginn 23. ágúst sl.

Nokkrar ábendingar hafa þegar borist vegna málsins en lögregla óskar nú sérstaklega eftir að ná tali af manni sem var á gangi með ljósan hund og konu sem var að skokka í bleikri peysu á göngustígnum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri í Garðabæ milli klukkan 14.10 og 14.30 sl. fimmtudag.

Þessir einstaklingar og aðrir sem telja sig geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband í síma 444-1000, senda póst á abending@lrh.is eða senda einkaskilaboð á fésbókarsíðu lögreglunnar.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Árásin átti sér stað á svæðinu við Arnarnesmýri, nánar tiltekið á göngustígum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri í Garðabæ.

Þeir sem að voru á ferli á svæðinu á milli klukkan 14 og 15 og kunna að hafa orðið vitni að árásinni, eða geta veitt upplýsingar um málið, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652