Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Umferðarslys, einn fluttur á sjúkrahús

$
0
0

Umferðarslys á Suðurlandi, einn fluttur á sjúkrahús

Umferðartafir eru nú á Eyravegi við Suðurhóla eftir að árekstur varð með fólksbifreið og smárútu þar.

Fjórir voru í rútunni en einn í fólksbílnum. Sá aðili er með meðvitund en var fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús.

Hinir fjórir eru taldir lítið eða ómeiddir. Vegna þessa er umferð stjórnað af lögreglumönnum á meðan vettvangur er rannsakaður. Ekki fengust frekari upplýsinga að svo stöddu frá lögreglunni á Suðurlandi

Umferðareftirlit á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært á annan tug ökumanna fyrir hraðakstur í umdæminu það sem af er þessari viku.

Sá sem hraðast ók mældist á 148 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann þarf að greiða 210 þúsund krónur í sekt auk ökuleyfissviptingar í einn mánuð.

Fáeinir voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna- eða ölvunarakstur. Tveir þeirra óku sviptir ökuréttindum og einn til viðbótar með fíkniefni í fórum sínum. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist voru ótryggðar eða óskoðaðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652