Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ræðan sem aldrei var flutt

$
0
0

Ræðan sem aldrei var flutt

,,Haraldur Benediktsson, bóndi og alþingismaður, átti að vera einn af ræðumönnum Sjálfstæðisflokksins í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi sl.miðvikudagskvöld. Ræðan var þó aldrei flutt vegna þess að ræðutími flokksins var uppurinn vegna misskilnings um ræðutíma að því er fram kemur á Skessuhorni.is, fréttaveitu Vesturlands, sem birtir ræðu Haraldar í heild.

Sú ræða er athyglisverð. Haraldur segir m.a.:

“Við erum þjóð, sem nýtum gæði náttúrunnar.

Við höfum byggt þessa stöðu upp á viðskiptum við aðrar þjóðir – á okkar eigin forsendum. Sagan geymir hvernig okkur vegnar undir yfirstjórn annarra en okkar.

Ein af stoðum okkar er samstarf innan EES. Samningur, sem nú er aldarfjórðungs gamall og tímabært fyrir okkur að endurmeta reynslu hans og framkvæmd.

Enginn skal efast um vilja okkar til að starfa áfram innan hans. Enda er hann grundvöllur að margháttuðu frelsi sem okkur finnst í dag sjálfsögð og við tökum ekki lengur eftir.

En það kemur ekki í veg fyrir að við verðum að gera upp við okkur – horfast í augu við hvernig við höfum umgengist hann sjálf.

Við eigum ekki að loka augunum fyrir því sem er neikvætt, framkvæmd hans er okkur sjálfum að kenna.

Aðildarumsókn Íslands ESB er eitt af þeim.

Með aðildarumsókn okkar lögðum við niður og veiktum vakt okkar um eigin hagsmuni á vettvangi EES.

Það verður seint ofmetið hvaða tjón aðildarferlið leiddi yfir okkur.”

Undir þetta skal tekið. –                              Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritsjóri Morgunbaðsins

Yfirlýsing formanns Samfylkingar um ESB kallar á hörð viðbrögð

Í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi sl. miðvikudagskvöld gaf Logi Einarsson, formaður Samfylkingar skýra og afdráttarlausa yfirlýsingu um afstöðu flokksins til ESB. Hann ítrekaði að Samfylkingin vildi taka upp evru og að Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu.

Í ljósi þróunar ESB á síðustu árum og vondrar reynslu margra evruríkja af því að taka þann gjaldmiðil upp er nánast ótrúlegt að heyra slíkar yfirlýsingar nú.

En ummæli Loga voru alveg skýr.

Það er ljóst að Samfylkingin hefur ekki veitt því eftirtekt að innan ESB ríkir algert uppnám. Aðildarríkin í A-Evrópu eru í stríði við Brussel. Grikkir upplifa sig sem nýlendu annarra Evrópuríkja, og að þeir hafi verið rændir til að greiða upp tap þýzkra banka af lánum til Grikklands, á Ítalíu eru ráðamenn æfir yfir því að einn af helztu ráðamönnum ESB lýsir þeim sem “litlum mússólínum”. Suður-Evrópa öll er í sárum eftir evruna.

Á Norðurlöndum, sem í augum jafnaðarmanna eru fyrirmyndarríkin, er uppgangur mjög hægri sinnaðra flokka augljós, hvort sem talað er um Sanna Finna, Danska þjóðarflokkinn eða Svíþjóðardemókrata. Ástæðan blasir við. Það er engin samstaða um innflytjendapólitík ráðandi ríkja innan ESB.

Að boða inngöngu Íslands í slíkt ríkjabandalag er fullkomið glapræði en er engu að síður yfirlýst stefna tveggja flokka, Samfylkingar og Viðreisnar.

Það þarf að herða baráttuna gegn því að gera Ísland að litlum hreppi í 500 milljón manna ríkjabandalagi. ” Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritsjóri Morgunbaðsins.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652