Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

FISK-Seafood kaupir hlut Brims í Vinnslustöðinni á 9,4 milljarða

$
0
0

FISK-Seafood kaupir hlut Brims í Vinnslustöðinni á 9,4 milljarða

Makríl pakkað í Vinnslustöðinni

FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki hefur gengið frá samningi um kaup á öllum eignarhlut Brims hf. í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum. Um er að ræða þriðjungs hlut alls hlutafjár í Vinnslustöðinni. Kaupverðið er kr. níu milljarðar og fjörgurhundruð milljónir. Samningurinn verður sendur Samkeppniseftirlitinu.

Stjórn og stjórnendur FISK-Seafood ehf. vænta góðs samstarfs við eigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar hf. og sjá mikil tækifæri í rekstri félagsins og samvinnu þessara tveggja sjávarútvegsfyrirtækja.

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmastjóri VSV, bregst glaður við þessum tíðindum:
„Ég leyfi mér fyrir hönd okkar Eyjamanna í eigendahópi félagsins að fagna ákvörðun Fisk Seafood og segi á móti við Skagfirðinga að við sjáum líka í stöðunni ýmsa áhugaverða möguleika á samstarfi við þá.“

Greint er frá málinu á vef Eyjafrétta.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652