Mál Thomas Møller Olsen tekið fyrir í Landsrétti í dag
Þinghald fer fram í Landsrétti klukkan tvö í dag í máli ákæruvaldsins gegn Thomasi Møller Olsen.
En hann var í september í fyrra, dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur og fyrir umtalsvert fíkniefnasmygl er hann reyndi að smygla miklu magni af hassi sem skipverji á Polar Nanoq, frá Danmörku til Grænlands, í gegnum Ísland.
Dómurinn yfir Olsen er einn sá þyngsti sem kveðið hefur verið upp á Íslandi. Thomas Møller Olsen áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar og í dag verður farið yfir við réttinn, hvaða vitni verða við aðalmeðferðina og fleiri atriði er varða málið .