Flugrekstur Norwegian gengur vel og bætir við 25 nýjum Boeing þotum
Norwegian flutti 3.444.854 farþega nú í september s.l. og er það 9% aukning frá fyrra ári. Heildar farþegaflutningar jukust um 31 prósent, en heildarframboð, jókst um 32 prósent.
,,Það er ánægjulegt að fjöldi farþega á flugmarkaði skuli velja að ferðast með Norwegian. Vöxturinn er mikill og vaxandi skv. langtíma áætlunum fyrirtækisins og eftirspurnin er stöðug.
Alþjóðlega umhverfis stofnunin ICCT hefur í þessum mánuði benti á flugfélagið sé með lang lægstu losun á mengandi efnum fyrir umhverfið, yfir Atlantshafinu. Sem bendir til þess að nýjar flugvélar okkar eru umhverfisvænni en áður fyrir umhverfið og fyrir fyrirtækið,” segir forstjóri Norwegian, Bjørn Kjós .
Norwegian heldur áfram að endurnýja flugflotann
Fyrirtækið fékk nýjar vélar frá verksmiðju Boeing á dögunum. Nýja Boeing 787-9 Dreamliner og tvær Boeing 737 MAX 8 í þessum mánuði.
Í heildina mun Norwegian fá 11 Boeing 787-9 Dreamliners, 12 Boeing 737 MAX 8 og tvær Boeing 737-800.