Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vestfirðingar líkja nýsamþykktu frumvarpi og stuðningi ríkisstjórnarinnar við laxeldi, við stuðninginn við íslenska landsliðið

$
0
0

Vestfirðingar líkja nýsamþykktu frumvarpi ríkisstjórnarinnar við stuðning við íslenska landsliðið

Víkingingur Gunnarsson, starfsmaður og einn af aðal talsmönnum laxeldisins á Vestfjörðum fagnar ákaft á facebooksíðu sinni, þeim mikla “sigri” laxeldisfyrirtækja með það að hafa fengið starfsleyfi sitt sem knúið var fram með handafli gegn faglefri úrskurðarnefnd umhverfisráðherra.

,,Mikið er gaman að sjá hvernig samstaða getur verið sterk ef allir leggjast á eitt. Samstaða vestfirðinga minnti mig á samstöðu íslenska landsliðsins í fótbolta.

Sveitarstjórnarfólkið okkar stóð upp og sagði hingað og ekki lengra. Íbúar vestfjarða allir sem einn.

Alþingi með atvinnunefnd og umhverfisnefnd sagði nei, meira að segja þær stofnanir sem um málin fjalla og margir aðrir um allt land. Í dag er ég stoltur og hef öðlast aftur trú á samfélagið okkar. ” Segir Víkingur Gunnarsson, um afgreiðslu þingsins sem að afgreiddi frumvarpið í skjóli nætur í gær.

Og hnekkti þar með úrskurði nefndarinnar. En málið hefur vægast sagt verið mjög umdeilt þar sem að hagsmunir laxeldis og mengunar og tjóna sem að eru óafturkræf gagnvart íslenska laxastofninum takast á.

Spurt hefur verið m.a. hví Sjálfstæðisflokkurinn hafi allt í einu hlaupið upp til handa og fóta fyrir þetta einstaka fyrirtæki. Á meðan að sami flokkur hafi gengið fremstur allra í því að leggja byggðir og störf í rúst, sem er innbyggð afleiðing í fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í kvótakerfinu hafa Vestfirðir orðið hræðilega úti. Í þeim ósköpum öllum um áratuga skeið hafa tapast skip, heilu togararnir og þúsundir tonna af veiðiheimildum og margfalt fleiri störf en nú er verið að bjarga. Ekkert hefur verið gert til þess að bjarga þeim störfum undanfarna áratugi með neyðar frumvörpum og lagasetningum.

En Fréttatíminn hefur fjallað um málið líkt og aðrir fjölmiðlar enda fátt annað verið gert af hálfu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur en að knýja fram lagasetningu.  Sem snérist um að fella niður og ógilda úrskurð úrskurðarnefndar Guðmunar Inga, umhverfis- og auðlindaráðherra. Fella faglegan úrskurð nefndarinnar úr gildi af pólitískum ástæðum, þar sem að umhverfismál verða augljóslega látin víkja fyrir fjárhagslegum hagsmunum.

Tengt efni: 

Laxeldi – Öskuhaugahagfræði

 

Springur ríkisstjórnin vegna laxeldismála á Vestfjörðum?

Ein af hverjum fimm laxveiðiám lokuð stangaveiðimönnum vegna laxeldis

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652