Veitingahús merkja sig – ekki með lax úr sjóeldi
Á síðunni ,, Nei við laxeldi úr sjó” kemur fram að ,,veitingastaðir á Íslandi sem bjóða lax úr landeldi, séu farnir að aðskilja sig frá öðrum veitingastöðum sem framreiða norskan sjókvíaeldislax.
Fyrir erlenda ferðamenn er skilti sem stendur á ,, We only serve salmon from sustainable land-based farming”.
,,Þeir sem láta sig málið varða ættu að leita að þessum miða. ,,Við bjóðum aðeins lax úr sjálfbæru landeldi.” Segir á síðunni, en þar er hægt að finna margt um laxeldi, bæði hérlendis og erlendis.
Samnefnari yfir allt efni á síðunni er að talað er um þann skaða sem að laxeldi í sjó hefur valdið lífríkinu og þess m.a. getið að 680.000 laxar hafi sloppið í s.l. viku út í vilta náttúruna frá einu laxeldisfyrirtæki erlendis og almennt um skaðsemina sem að laxeldisfyrirtæki valda. Jafnframt er allt fréttaefni tengt laxeldi safnað saman á síðuna og m.a. um hundruða milljóna tap laxeldisfyrirtækja og sagt að ríkið hafi gefið laxeldisfyrirtækjum leyfi sem að hefðu kostað tugi milljarða í Noregi.
Prófíl mynd síðunnar er af sýktum eldislöxum
,,Það fer mikið fyrir áróðri norskra fiskeldis-fyrirtækja í fjölmiðlum þessa dagana. Þar er dregin upp glansmynd af sjókvíaeldi með vafasömum hætti. Stærsta laxeldisfyrirtæki landsins tapaði sem nemur 2.100 milljónum í fyrra og hundruðum milljóna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Að auki varð stærsta slys íslenskrar fiskeldissögu fyrir skömmu. Sjókvíaeldi er hvorki umhverfisvænt né sýnir samfélagslega ábyrgð. Það er drifið áfram af hagnaðarvon með neikvæðum umhverfisáhrifum.” Segir m.a. á síðunni