Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Rok og rigning um allt land

$
0
0

Dæmigert haustveður um allt land

,,Gengur í austan hvassviðri um allt land með morgninum, jafnvel að það slái í storm undir Eyjafjöllum síðdegis, og því þörf á aðgæslu ef ferðast er þar um. Með þessu fylgir nokkur rigning, einkum SA-lands.

Þetta er því dæmigert haustveður, hvass vindur og rigning, en engar viðvaranir eru í gildi þegar þetta er ritað í morgunsárið. Með þessum skilum fylgir gusa af hlýju lofti og upp úr hádegi er útlit fyrir 8 til 13 stiga hita um landið S-vert.  Í kvöld dregur úr bæði vindi og úrkomu, en áfram verður hellirigning SA-til fram á nótt.

Á morgun er útlit fyrir mun hægari vind, úrkomulítið veður og líklega léttir til fyrir norðan. Það bætir síðan í vind og úrkomu A-lands annað kvöld.” Segir á veðurstofa Íslands. 

Veðurhorfur á landinu
Austan 13-20 m/s og rigning með morgninum, en slydda eða snjókoma til fjalla fram að hádegi. Lægir um allt land í kvöld og dregur víða úr úrkomu, en áfram rigning SA-til. Hiti 0 til 7 stig, en 8 til 13 stig S-lands eftir hádegi.
Austan 5-13 m/s á morgun, skýjað og úrkomulítið, en hægari vindur N-lands og léttir til. Norðaustlægari annað kvöld með rigningu um landið austanvert, 10-15 m/s með SA-ströndinni. Hiti 3 til 8 stig.
Spá gerð: 11.10.2018 05:01. Gildir til: 12.10.2018 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðvestan og vestan 5-10 m/s á N-verðu landinu með rigningu á köflum, en slyddu til fjalla. Suðvestlægari sunnantil, skýjað og víða þurrt. Hiti 1 til 7 stig, mildast SA-til.

Á sunnudag og mánudag:
Hæg suðlæg átt og skýjað með köflum, en stöku skúrir eða slydduél um sunnanvert landið. Hiti 0 til 7 stig, svalast i innsveitum.

Á þriðjudag:
Snýst í austan- og norðaustanátt með rigningu eða slyddu austast, annars þurrt. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en sums staðar frost inn til landsins.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðlæga átt og kólnandi veður með éljum, en úrkomulítið SV-til.
Spá gerð: 11.10.2018 08:03. Gildir til: 18.10.2018 12:00.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652