Stórglæsileg landbúnaðarsýning
Mikill fjölda gesta var við opnun landbúnaðarsýningarinnar „Íslensks landbúnaðar 2018“ sem að fram fer í Laugardalshöll um helgina og var formlega opnuð í dag. Sýningin er öll hin glæsilegasta og yfir 100 fyrirtæki sem að kynna vörur og þjónustu á sýningunni og margt athyglivert að sjá.
Ólafur M. Jóhannesson hjá Ritsýn ehf. er framkvæmdastjóri landbúnaðarsýningarinnar „Íslensks landbúnaðar 2018“ en hann hefur haldið fjölmargar sýningar í gegnum tíðina, meðal annars Sjávarútvegssýninguna 2016 og síðast Stóreldhúsið 2017 þar sem fagaðilar í veitingageiranum báru saman bækur sínar. Ólafur hefur metnaðarfullar áætlanir en hann hefur á síðustu mánuðum rætt við fjölda fyrirtækja og hagsmunaaðila innan landbúnaðarins.
Ólafur sagði við formlega opnun sýningarinnar í dag að hann hefði ekki órað fyrir því hve góð og mikil þáttaka myndi verða og jafnframt benti hann á að það væri ekki sjálfsagt að þjóðir gætu státað af þeim hreinleika og gæðum á matvælum eins og íslendingar geta gert með stolti.
Hér sést Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins gæða sér á gröfnu geitarkjöti sem að bragðaðist mjög vel í kynningu hjá Matís sem er einn af fjölmörgum aðilum á sýningunni
„Sýningin verður að uppistöðu kynning á sölu- og þjónustuaðilum landbúnaðargeirans en líka blanda af fræðslu og fyrirlestrum um greinina,“ segir Ólafur sem er þessa dagana ásamt samstarfsfólki sínu að hefja sölu á sýningarplássi í Laugardalshöllinni, bæði inni og á útisvæði. Að sögn Ólafs eru viðtökurnar góðar og ekki við öðru að búast en að sýningin verði myndarleg.
Guðni Ágústsson flutti ræðu við opnunina og þakkaði öllum sem að sýniningunni komu og því mikla verki sem að búið væri að inna af hendi en þess má geta að Ólafur vann í 14 mánuði við að undirbúa sýninguna.
Guðni fór yfir stöðu landbúnaðarins, hreinleika við matvælaframleiðsluna og hversu mikilvægir bændur væru þjóðinni. Hann minntist einnig á landbúnaðarsýningar sem að hann sótti sem ungur maður og að lokum var hrópað fjórfalt húrra fyrir opnuninni og formaður bændasamtakanna setti svo sýninguna formlega.
„Markmið sýningarinnar er meðal annars að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika matvælaframleiðslunnar. Að kynna fyrir bændum og öðrum gestum tæki og tól til landbúnaðar og hvers kyns rekstrarvörur og aðrar vörur sem til þarf,“ segir Ólafur í viðtali við Bændablaðið.
Margt var um manninn strax við opnun í dag í Laugardalshöll og opið verður alla helginaGunnar Bender hjá Sportveiðiblaðinu er með veiðikynningu og áskriftartilboð á Sportveiðiblaðinu
Lifandi tónlist og kór voru á meðal skemmtiatriða
G.Á Húsgögn voru á meðal sýnenda en á svæðinu er margt að sjá og bás við bás
,,Á árum áður voru haldnar glæsilegar landbúnaðarsýningar í Laugardalshöllinni. Fræg er sýningin frá 1968 sem var vel sótt af borgarbúum og bændum. Á næsta ári verða 50 ár frá þeirri sýningu. Mynd / Agnar Guðnason”