Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Opnaði áfengisflösku í ÁTVR og drakk á staðnum og annar á gangi reykjandi jónu úti á götu

$
0
0

Opnaði áfengisflösku í ÁTVR og drakk á staðnum og annar á gangi reykjandi jónu

Í hádeginu í dag var lögreglu tilkynnt um karlmann í annarlegu ástandi sökum ölvunar sem hafði komið inn í áfengisverslun í miðborginni og opnaði þar áfengisflösku og drakk úr henni án þess að greiða fyrir.

Var karlmaðurinn handtekinn enda var ekki hægt að ræða við hann sökum ástands.

Var hann vistaður í fangaklefa og verður rætt við hann þegar að hann verður kominn í eðlilegt ástand aftur.

 

Þá hafði lögreglan afskipti af karlmanni sem var á rölti inn í hverfi í Hafnarfirði reykjandi meinta kannabisjónu. Auk þess fannst á honum önnur meint jóna og verður hann kærður fyrir vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna.

Laust fyrir hádegi var tilkynnt um að farið hafi verið inn í ólæsta bifreið í miðborginni og eitthvað af verðmætum stolið úr henni og stuttu síðar var tilkynnt um þjófnað á bifreið í hverfi 104.

Kl. 11:49 var óskað eftir aðstoð lögreglu og sjúkraliðs í Kópavogi, vegna karlmanns sem hafði fallið af hesti í hverfi 201 í Kópavogi og var karlmaðurinn fluttur á slysadeild til skoðunar og aðhlynningar.

Um klukkan þrjú í dag var svo kvenmaður handtekin vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hún að auki ökuréttindalaus þar sem hún hafði verið svipt þeim fyrir nokkru. Fékk hún svo að fara frjáls ferða sinna að lokinni skýrslu- og blóðsýnatöku.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652